Verkfallsmiðstöð opnuð í Valsheimilinu
Fréttir|22. október 2014
Verkfallsmiðstöð Félags tónlistarskólakennara var opnuð í Valsheimilinu klukkan 11 í morgun. Þar verður heitt á könnunni þrjá daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá klukkan 11 til 14. Félagsmenn FT eru hvattir til að heimsækja verkfallsmiðstöðina, sýna samtöðu og efla félagsandann.
Verkfallsvarsla hefst í dag og munu verkfallsverðir heimsækja nokkra tónlistarskóla. Þeir sem vilja skrá sig í verkfallsvörslu geta gert það í miðstöðinni eða sent póst á verkfall@ki.is.
Samningafundi lauk skömmu fyrir sjö í gærkvöld og hefur ríkissáttasemjari ekki boðað til næsta fundar.