Verkfallsmiðstöð opnuð á morgun
Fréttir|17. mars 2014
Verkfallsmiðstöð verður opnuð í Framheimilinu klukkan 11 í fyrramálið, þriðjudag. Opið verður til klukkan 15. Gunnlaugur Ástgeirssson heldur erindi klukkan 14 og segir sögur úr verkfallsbaráttu fyrri ára.
Á miðvikudag verður opið frá 10 til 15 en lokað verður á fimmtudag og föstudag vegna aðalfundar Félags framhaldsskólakennara. Þó verður boðið upp á gönguferð klukkan 10 á fimmtudagsmorgun. Gengið verður frá Framheimilinu.
Að sögn Guðjóns Ragnars Jónassonar, forsvarsmanns verkfallsmiðstöðvarinnar, er fyrirhugað að opna miðstöðvar á Akureyri, Akranesi og í Reykjanesbæ á næstunni. Upplýsingar verða birtar þegar þær liggja fyrir.