Verkfallsbrot og viðurlög við þeim

Fréttir|23. janúar 2015

Verkfallsbrot og viðurlög við þeim

Samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er þeim sem verkfall beinist gegn óheimilt að stuðla að því að afstýra því með aðstoð einstakra félagsmanna þess félags sem að verkfallinu stendur. Framhaldsskólakennarar voru sem kunnugt er í þriggja vikna verkfalli á síðasta ári í aðdraganda kjarasamningsins

Guðríður Arnardóttir, formaður FF skrifar. 

þann 4. apríl og á þeim tíma var stéttinni óheimilt samkvæmt lögum að sinna verkum sem tengdust starfi þeirra og skyldum. Þar með talið voru ferðir með nemendur sem hafa færst mjög í vöxt á liðnum árum.

Vitað er að nokkrir skólar voru með slíkar nemendaferðir fyrirhugaðar þetta vor, ýmist tengdar einstaka kennslugreinum eða sérstökum verkefnum. Í einhverjum tilfellum var um að ræða styrkt verkefni úr nemendaskiptasjóðum eða samstarfssjóðum eins og Comeniusi (menntaáætlun ESB). Verkfallsstjórn var ætlað að hafa eftirlit með að lög og reglur væru virt á meðan verkfall stóð yfir og alveg ljóst að engar undanþágur voru veittar frá verkfallsreglum vegna nemendaferða, enda engar undanþáguheimildir í lögum utan þess sem varðar mannslíf eða almannaheill.

Ótvírætt verkfallsbrot
Einu máli vísaði verkfallsstjórn sérstaklega til stjórnar félagsins er varðaði meint verkfallsbrot tveggja kennara sem fóru þvert á tilmæli verkfallsstjórnar til útlanda með nemendur í miðju verkfalli. Rökin voru þau að nemendurnir væru sjálfráða og kennararnir myndu ekki veita neina þjónustu eða bera nokkra ábyrgð á þeim á meðan að verkfallið stóð yfir. Nokkur bréf gengu milli stjórnar og viðkomandi skóla varðandi rökstuðning og skýringar á meintu broti en svo fór að stjórn vísaði málinu til umsagnar Gísla Hall lögmanns og óskaði álits hans á næstu skrefum í málinu. Niðurstaða Gísla var nokkuð afdráttarlaus og byggði á svörum skólans við spurningum stjórnar varðandi umrædda ferð. Taldi Gísli að skólinn hefði gerst sekur um verkfallsbrot með téðri ferð kennaranna.

Framhaldsskólakennarar sýndu almennt mikla samstöðu þegar þeir lögðu niður störf í vor. Fjöldi kennara safnaðist daglega saman í verkfallmiðstöð sem komið var upp í Framheimilinu í Reykjavík. Þrátt fyrir almenna samstöðu eru engu að síður dæmi um að kennarar hafi brotið þær leikreglur sem þeim voru settar í verkfallinu.

Næst var að ákvarða næstu skref í málinu er varðaði kæruleiðir. Almennt er málum af þessum toga vísað til Félagsdóms og þá helst ef verkfallsbrot grundvallast á lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Það er þá Félagsdóms að dæma í málum og ákvarða sektir. Við þessa rýni Gísla og samanburð á annars vegar lögum nr. 80/1938 sem gilda um almenna vinnumarkaðinn og hins vegar lögum nr. 94/1996 um opinbera starfsmenn var það niðurstaða hans að verkfallsbrotum opinberra starfsmanna væri ekki hægt að vísa til Félagsdóms, heldur yrðu slík mál eingöngu rekin fyrir almennum dómstólum og þá að uppfylltum almennum réttarfarsskilyrðum. Slíkt myndi lúta reglum opinbers réttarfars þar sem yrði að kæra atvikið til lögreglu og krefjast þess að gefin væri út ákæra samkvæmt ákvæðum laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Lögregla en ekki Félagsdómur
Stjórn FF fór vandlega yfir niðurstöðu Gísla þar sem það var mat stjórnar að verkfallsbrot yrðu ekki liðin, enda til þess fallin að draga mátt úr þeirri nauðvörn sem verkfallsrétturinn er. Hins vegar hafa fáir ef nokkur rýnt jafn ítarlega í lagabókstafinn hvað þetta varðar og kom á óvart að verkfallsbrotum opinberra starfsmanna þarf að vísa til lögreglu og almennra dómstóla en ekki Félagsdóms. Niðurstaða stjórnar FF var sú að í þetta skiptið yrði málið látið niður falla en komi til verkfalls aftur mun fordæmið sem þetta mál skapaði verða kynnt vandlega og félagsmönnum gerð grein fyrir alvarleika verkfallsbrota og að þau verði ekki liðin í framtíðinni.

Nú kann að vera að einhverjum finnist ákvörðun stjórnar bitlaus. Það má vera en það eru þung spor að kæra félagsmenn og samherja til lögreglu og í anda þeirra laga sem gilda um kjör og aðstæður opinberra starfsmanna töldum við mikilvægt að virða meðalhófsregluna og þá þannig að félagsmönnum væri gerð rækilega grein fyrir alvarleika þess að brjóta lög í verkfalli, og hvaða afleiðingar slíkt hefði. Þetta mál reyndi á þá kennara sem voru aðilar að málinu og það reyndi líka á stjórn félagsins. En þetta mál er til að læra af eins og svo margt sem á vegi okkar verður í lífinu.

Guðríður Arnardóttir
Formaður Félags framhaldsskólakennara 

 

Þessi grein birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands. Lestu blaðið í heild: 

Skólavarðan á Apple-Store 

Skólavarðan á Google Play

Skólavarðan á netinu