Verkfallsboðun samþykkt í Tækniskólanum og Menntaskóla Borgarfjarðar

Fréttir|8. mars 2014

Mikill meirihluti félagsmanna KÍ í Tækniskólanum og Menntaskóla Borgarfjarðar hefur samþykkt boðun verkfalls 17. mars næstkomandi hafi nýir kjarasamningar ekki náðst. Atkvæðagreiðsla fór fram í skólunum tveimur dagana 6. til 7. mars 2014 og talning atkvæða fór fram í dag.

Niðurstaðan er sem hér segir:

Tækniskólinn

  • Á kjörskrá voru 167.
  • Atkvæði greiddu 141 eða 84,4%.
  • Já sögðu 116 eða 82,3%.
  • Nei sögðu 23 eða 16,3%.
  • Auðir seðlar og ógildir voru 2 eða 1,4%.

Menntaskóli Borgarfjarðar

  • Á kjörskrá voru 13.
  • Atkvæði greiddu 12 eða 92,3%.
  • Já sögðu 9 eða 75%.
  • Nei sögðu 3 eða 25%.
  • Auðir seðlar og ógildir voru 0.