Verkfallsboðun samþykkt
Mikill meirihluti félagsmanna Kennarasambands Íslands í ríkisreknum framhaldsskólum hefur samþykkt að fara í verkfall 17. mars næstkomandi, hafi samningar við þá ekki náðst. Atkvæði voru greidd um verkfallsboðunina dagana 18. til 21. febrúar, en atkvæði voru talin í dag. Niðurstaðan er sem hér segir:
Á kjörskrá voru 1.541
Atkvæði greiddu 1.339 eða 86,9%
Já sögðu 1.173 eða 87,6%
Nei sögðu 134 eða 10,0%
Auðir seðlar og ógildir voru 32 eða 2,4%
„Þessi afgerandi niðurstaða sýnir að kennarar standa af fullum hug á bak við samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Enda förum við aðeins fram með þá sanngjörnu kröfu að laun okkar verði hækkuð til samræmis við samanburðarhópa“ segir Aðalheiður Streingrímsdóttir, formaður FF, um niðurstöðuna. „Verkefnið framundan er að ná samningum, því þrátt fyrir úrslit atkvæðagreiðslunnar þá veit ég að enginn kennari vill fara í verkfall. Það yrði neyðarúrræði.“