Verkfallsbætur vegna FT

Fréttir|3. nóvember 2014

Til að sækja um verkfallsbætur vegna verkfalls félagsmanna í Félagi tónlistarskólakennara skal fara inn á heimasíðu KÍ – Mínar síður og velja flipa sem heitir "Vinnudeilusjóður". Þar verður hægt að sækja um bætur frá miðvikudegi 5. nóvember. Greitt verður fyrir 14 daga, kr. 6000- á dag miðað við 100% starf. Af greiðslunum veður tekin staðgreiðsla í þrepi 2.

Bæturnar verða greiddar út eins fljótt og kostur er eftir að sótt hefur verið um.