Verkfallsbætur greiddar í næstu viku
Fyrsta útborgun verkfallsbóta til framhaldsskólakennara verður greidd þriðjudaginn 1. apríl næstkomandi. Þá verða tvær vikur síðan verkfall framhaldsskólakennara hófst og fari svo að samningar hafi náðst fyrir útborgunardag verður eftir sem áður greitt fyrir verkfallsdagana. Reglan er að bætur eru greiddar á tveggja vikna fresti á meðan á verkfalli stendur.
Verkfallsbæturnar nema 6.000 krónurm á dag, sjö daga vikunnar, og er greiddur skattur af upphæðinni.
Að sögn Ingibergs Elíassonar, formanns stjórnar Vinnudeilusjóðs KÍ, hafa trúnaðarmenn framhaldsskólanna tekið saman upplýsingar um alla þá sem eru í verkfalli og sent til Vinnudeilusjóðs. „Við sjáum ekkert því til fyrirstöðu að greiða út fyrstu bæturnar en þess má geta að persónuafsláttur nýtist fólki ekki fyrr en í apríl, standi verkfallið svo lengi,“ segir Ingibergur.
Þeir sem vilja ekki nýta persónuafslátt þurfa að tilkynna það bréflega. Hægt er að senda bréf þess efnis á Verkfallsstjórn FF á netfangið verkfall@ki.is.