Verkfallsaðgerðir kennara í Noregi fara harðnandi

Fréttir|19. ágúst 2014

Um 2.200 kennarar fara í verkfall í Noregi á fimmtudag. Þeir bætast þá í hóp 5.500 kennara sem hófu verkfall 11. ágúst síðastliðinn. Þar með ná verkfallsaðgerðirnar í Noregi til 7.700 kennara en þess má geta að 33 kennarar í Bergen hafa verið í verkfalli í allt sumar.

Ragnhild Leid, formaður norska Kennarasambandsins (Utdanningforbundet), segir mikið þurfa að gerast í viðræðunum til þess að verkfalli verði aflýst. Leid segir mikinn baráttuanda meðal félaga sinna. „Þeir vilja vera kennarar, ekki embættismenn,“ segir Leid og bætir við að sannfæra þurfi kennara um að KS (norska sveitarfélagasambandið) vilji skólunum hið besta. Frá þessu er greint í fréttabréfi Norrænu kennarasamtakanna (NLS).

Vinnutími kennara er meðal þess sem rætt er um í samningagerðinni. Kennarar krefjast þess að fá að sinna starfi sínu af alúð, þeir vilja meiri tíma fyrir hvern nemanda og til starfa fyrir og eftir kennslu.

Félagar í norska Kennarasambandinu eru tæplega 160 þúsund.