Verkfall samþykkt í Tónlistarskóla Ísafjarðar

Fréttir|11. október 2024

Félagsfólk í FT, sem starfar í Tónlistarskóla Ísafjarðar, samþykkti að boða til verkfalls 29. október næstkomandi, með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa verkföll verið boðuð í níu skólum.

Atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Tónlistarskóla Ísafjarðar lauk klukkan 15:00 í dag. 100% félagsmanna í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni sögðu já við boðun verkfalls. Kjörsókn var rúmlega 83%.

Verkfall félagsmanna FT sem starfar í Tónlistarskóla Ísafjarðar hefst 29. október og lýkur 20. desember, hafi samningar ekki náðst.

Í gær var greint frá því að allir félagsmenn í FG, FL og SÍ, eða 100%, sögðu já við boðun verkfalla og 81% félagsmanna FF og FS sem starfa í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Það er því óhætt að segja að eindregin samstaða sé meðal félagsfólks aðildarfélaga KÍ um aðgerðir, þvert á skólastig og skólagerðir.

Verkföll eru áformuð 29. október í níu skólum; fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla, hafi samningar ekki náðst.

Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar á þriðjudag og mætir þá viðræðunefnd Kennarasambandsins sem er skipuð formönnum aðildarfélaganna sjö og formanni KÍ, til fundar með samninganefndum sveitarfélaga og ríkisins.