Verkfall kvenna og kvára hafið – nú er tími aðgerða

Fimmtíu ár eru í dag síðan kvennafrídagur íslenskra kvenna varð heimsfrétt. Blásið hefur verið til kvennaverkalls í dag, 24. október og verða viðburðir haldnir hringinn um landið.
Kennarasamband Íslands hvetur því konur og kvár til að leggja niður launuð og ólaunuð störf í dag.
Dagurinn í dag markar tímamót því fimmtíu ár eru síðan konur hér á landi lögðu niður störf í einn dag. Þetta var árið 1975 og talið er að 90 prósent kvenna hafi tekið þátt í verkfallinu. Um 25 þúsund konur komu saman á Lækjartorgi og þótti það mjög mikill fjöldi í þá daga. Kvennafrídagurinn 1975 varð að heimsfrétt og vakti gríðarlega athygli um víða veröld. Tilefnið var að Sameinuðu þjóðirnar höfðu gefið út að árið 1975 yrði helgað málefnum kvenna. Haldið hefur upp á daginn sjö sinnum; sem kvennafrídags og sem kvennaverkfalls í seinni tíð.
Kennarar koma saman
Kennarasambandið tekur þátt í sögugöngu kvennastétta sem fer fram á milli klukkan 13.30 og 14.45 í dag. Gengið verður frá hringtorgi við gatnamót Sóleyjargötu og Njarðargötu, um Fríkirkjuveg og inn Lækjargötu. Klukkan 15.00 hefst svo útifundur á Arnarhóli þar sem meðal annars hljómsveitirnar Mammaðín og Reykjavíkurdætur koma fram.
- Hér er hægt að kynna sér dagskrána betur.
Við biðjum alla kennara og allt skólafólk sem vill taka beinan þátt í göngunni með okkur um að mæta klukkan 13:00 í dag við gamla Miðbæjarskólann við Fríkirkjuveg og halda þar á lofti kröfuspjöldum sem búið er að útbúa út frá stéttabaráttu kennara í gegnum tíðina.

Kennarar koma saman við gamla Miðbæjarskólann við Fríkirkjuveg klukkan 13:00 í dag
Auk sögugöngu og kröfufundar í Reykjavík fer fjöldinn allur af viðburðum fram um land allt. Hægt er að kynna sér viðburði á landinu öllu hér og hér á vef Kvennaárs.
Áfram mikilvægt að hrista upp í kerfinu
„Árið 1975 lögðu um 90% kvenna niður störf og landið stóð kyrrt. Skólar lokuðu, feður sinntu börnunum og áhrifin voru skýr. Nú, 50 árum síðar, er enn ástæða til að minna á að jafnrétti hefur hvorki náðst né fest rætur til fulls. Verkefnið er aðkallandi og við verðum að halda áfram að hrista upp í kerfinu,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í hvatningu til félagsfólks fyrr í vikunni.

Í Kennarasambandi Íslands er mikill mannauður kvenna og kvára sem hafa lengi verið leiðtogar í jafnréttisbaráttu. Það er því eðlilegt og nauðsynlegt að félagsmenn KÍ verði í fararbroddi 24. október – bæði í borg og byggð.
Þar ítrekaði formaðurinn mikilvægi þess að félagsfólk KÍ yrði í fararbroddi 24. október, í bæði borg og byggð. „Látum þann dag sýna að við ætlum okkur meira en orðin tóm. Með samstöðu, kjarki og trú á réttlæti getum við fært jafnréttið nær raunveruleikanum. Baráttan er lifandi – og tíminn til að bregðast við er núna.“
Nú skiptir samstaðan, samhljómurinn og kvenkrafturinn öllu. Stundin er runnin upp!