Verkfall kennara í MR hafið

Félagsmenn KÍ sem starfa í Menntaskólanum í Reykjavík eru komnir í tímabundið verkfall.
Verkfall kennara í Menntaskólanum í Reykjavík hófst í morgun. Um tímabundið verkfall er að ræða, frá 18. nóvember til 20. desember næstkomandi, hafi samningar ekki náðst.
Þetta er annar framhaldsskólinn sem fer í verkfall en kennarar í Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa verið í verkfalli frá 29. október.
Alls eru kennarar í tíu skólum í verkfalli á þessari stundu.
Fyrir utan framhaldsskólanna, sem getið er hér að ofan, eru yfirstandandi verkföll í fjórum leikskólum (Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ, Ársölum á Sauðárkróki), þremur grunnskólum (Áslandsskóla, Laugalækjarskóla og Lundarskóla) og Tónlistarskóla Ísafjarðar.