Verkfall hefst í níu skólum á miðnætti

Fréttir|28. október 2024

Samningafundi í kjaradeilu KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkisins hins vegar lauk nú undir kvöld, án árangurs. Það þýðir að verkfall í níu skólum verður að veruleika á morgun, þriðjudaginn 29. október.

Verkfall hefst í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla klukkan 00:01 í nótt, 29. október.

Viðræðunefnd KÍ og samningsaðilar; sveitarfélög og ríki, settust á samningafund í morgun. Fundi lauk undir kvöld án árangurs. Næsti formlegi samningafundur hefur ekki verið boðaður.

Kennarasambandið gengur í fyrsta sinn fram sem ein heild að samningaborðinu og er viðræðunefndin skipuð formönnum aðildarfélaganna auk formanns KÍ.

Verkfallsaðgerðir fara fram á eftirtöldum stöðum

Ótímabundið verkfall í fjórum leikskólum

  • Leikskóli Seltjarnarness
  • Drafnarsteinn í Reykjavík
  • Holt í Reykjanesbæ
  • Ársalir á Sauðárkróki

Tímabundið verkfall í þremur grunnskólum, frá 29. október til 22. nóvember

  • Áslandsskóli í Hafnarfirði
  • Laugalækjarskóli í Reykjavík
  • Lundarskóli á Akureyri

Tímabundnar aðgerðir í framhaldsskóla og tónlistarskóla, frá 29. október til 20. desember

  • Framhaldsskóli Suðurlands
  • Tónlistarskóli Ísafjarðar

Frekari aðgerðir

Verkföll eru jafnframt boðuð í þremur grunnskólum frá 25. nóvember til 20. desember. Þetta eru Árbæjarskóli í Reykjavík, Garðaskóli í Garðabæ og Heiðarskóli í Reykjanesbæ.

Þá hefur verkfall verið boðað í Menntaskólanum í Reykjavík frá 11. nóvember til 20. desember.

 

Lesa meira um kjaraviðræður og verkfallsaðgerðir