Verkfall boðað í Tónlistarskólanum á Akureyri

Fréttir|5. febrúar 2025

Verkfall hefst í Tónlistarskólanum á Akureyri 21. febrúar, hafi samningar ekki náðst.

Kjörstjórn Kennarasambandsins kynnti niðurstöður í atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Tónlistarskólanum á Akureyri rétt í þessu.

Félagsmenn í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) í Tónlistarskólanum á Akureyri greiddu atkvæði um boðun verkfalls. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 3.-5. febrúar 2025.

Verkfallsaðgerðir voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum og kjörsókn var góð, eða 87%. Verkfallið verður tímabundið og stendur frá 21. febrúar og til og með 4. apríl, hafi samningar ekki náðst. 

Önnur lota verkfalla

Kjaradeila KÍ við ríki og sveitarfélög á sér langan aðdraganda og hófst önnur verkfallslota í leik- og grunnskólum á mánudag. Þann 21. febrúar halda fimm framhaldsskólar í verkfall ásamt Tónlistarskólanum á Akureyri. Kennarar í Tónlistarskóla Ísafjarðar fóru í verkfall 29. október síðastliðinn og til stóð að verkfallið stæði til 20. desember. Til þess kom þó ekki því þann 29. nóvember frestaði Kennarasambandið öllum verkföllum, í leik-, grunn, framhalds- og tónlistarskólum, til 1. febrúar 2025.