Verkfæri til að efla öryggi í skólum

Fréttir|12. febrúar 2020

Vinnuumhverfisnefnd KÍ hefur útbúið sniðmát fyrir áhættumat og viðbragðsáætlun vegna ofbeldis og hótana í skólum.

Vinnuumhverfisnefnd hefur útbúið sniðmát og upplýsingaefni fyrir skóla vegna fjölgunar fyrirspurna um viðbrögð við ofbeldi og hótunum í garð kennara. Efla verður öryggismenningu í skólum til muna og er þetta liður í því. Atvikaskráningu hefur víða verið ábótavant en með sniðmátinu er hún auðvelduð til muna. Verkfærin verða send stjórnendum grunn-, leik-, framhalds- og tónlistarskóla í þessum mánuði. 

Með verkfærunum er ætlunin að auðvelda stjórendum að útbúa áhættumat vegna ofbeldis og hótana og viðbragðsáætlun sem ætti að vera öllu starfsfólki kunn.

Rannsóknir á Norðurlöndunum sýna að þetta er vaxandi vandi í skólum og óformleg könnun vinnuumhverfisnefndar leiddi í ljós að meirihluti íslenskra grunnskólakennara hefur þurft að takast á við ofbeldisatvik eða orðið fyrir ofbeldi bæði líkamlegu og andlegu á starfsævinni. Stjórnendur bera ábyrgð á gerð áhættumatsins og því að efninu sé dreift til öryggistrúnaðarmanna, öryggisnefnda og starfsfólks.

Sniðmátið er fengið frá Danmörku, nánar tiltekið frá Barnchfælleskaber for Arbejdsmiljö (BFA), en vinnuumhverfisnefnd hefur þýtt og staðfært efnið. Sniðmátin eru sex talsins og er ætlað að efla öryggismenningu í skólum og draga úr áhættuþáttum á borð við ofbeldi. 

Sniðmát yfirlit

  1. Atvikaskráning – Leiðarvísir og atvikaskráningarblað starfsfólks skóla
  2. Áhættumat – Undirbúningur áhættumats vegna hótana og ofbeldis fyrir stjórnendur
  3. Þarfagreining – Greining atvika, viðbrögð og forvarnir fyrir stjórnendur
  4. Sálræn skyndihjálp – Framkvæmd sálrænnar skyndihjálpar meðal jafningja
  5. Forvarnir – Starfsmannafundur og hópvinna í foravarnarskyni fyrir stjórnendur
  6. Viðbragðsáætlun – Viðbragðsáætlun, úrvinnsla og eftirfylgni fyrir starfsfólk

Von vinnuumhverfisnefndar er að sniðmátið muni nýtast til að vekja alla til meðvitundar um hættuna sem stafar af ofbeldi, mikilvægi atvikaskráningar og forvarna. Að auki óskar nefndin öllum velfarnaðar við að gera öryggismenningu að hluta af daglegu starfi skóla. 

Hlekkir

Áhættumat og viðbrögð við hótunum og ofbeldi í skólum

Öryggismenning í skólum – upplýsingar