Verkfærakista jafnréttisnefndar hefur litið dagsins ljós

Jafnréttisnefnd KÍ hefur útbúið jafnréttisgátlista fyrir skólastigin þrjú og tónlistarskóla sem nýta má við mat á jafnrétti í öllu skólastarfi og sýnileika þess innan skóla.
Í verkfærakistunni má finna jafnréttisgátlista, yfirlit yfir kennsluefni og hugmyndir og lista yfir verkefni jafnréttisfulltrúa. Verkfærakistan er á vef KÍ og er vonin að sem flestir kennarar nýti sér efnið.
Jafnréttisnefnd hefur útbúið jafnréttisgátlista fyrir skólastigin þrjú og tónlistarskóla sem nýta má við mat á jafnrétti í öllu skólastarfi og sýnileika þess innan skóla. Gátlistunum má dreifa til allra kennara sem geta nýtt sér þá við matið en einnig ættu eldri nemendur að geta nýtt sér gátlistana.
Yfirlit yfir kennsluefni og hugmyndir er samsafn efnis sem finna má á vef KÍ. Listinn er ætlaður til að auðvelda kennurum undirbúning kennslustunda sinna hvort sem um samþætta kennslu er að ræða, íslensku eða sértæka jafnréttis- og kynjafræðikennslu. Um leið á listinn að auðvelda öllum kennurum að virkja grunnþáttinn jafnrétti í kennslustundum sínum.
Jafnréttisfulltrúa er að finna í mörgum skólum en ekki öllum. Tillögur að verkefnum jafnréttisfulltrúa eru ætlaðar til að einfalda jafnréttisfulltrúum, stjórnendum og áhugafólki um jafnrétti í skólum starf sitt. Listinn er einnig hugsaður fyrir þá sem vinna að félagsmálum innan skóla svo allir geti sett upp kynjagleraugun og unnið að bættum hag allra, bæði nemenda og starfsfólks skóla.
- Verkfærakista jafnréttisnefndar KÍ
Uppfært 17. janúar 2024
Tengill á gátlista jafnréttisnefndar