Verkefnum um Harry Potter og leiðsagnarnám lokið

Tvö hafa skilað lokaskýrslu vegna verkefna sem Rannsóknasjóður KÍ styrkti á síðasta ári. Það eru dr. Hjördís Þorgeirsdóttir, framhaldsskólakennari við Menntaskólann við Sund, og Ármann Halldórsson, framhaldsskólakennari við Verzlunarskóla Íslands.
Ármann Halldórsson hlaut styrk til að gera starfendarannsókn á þróun valnámskeiðs í ensku um Harry Potter bækurnar. „Markmið rannsóknarinnar upprunalega var að rannsaka og þróa ákveðna aðferð við lestur og meðferð bókmennta sem kallast lectio divina. Vinnan þróaðist þá á þann veg að breikka sjónarhornið og fjalla um fleiri hliðar þróunarinnar og áhugaverðar kenningar og aðferðir sem tengdust áfanganum,“ segir Ármann í kynningu á verkefninu.
Ármann valdi að búa til tíu hlaðvarpsþætti. „Hlaðvarpsformið var valið þar sem það hentar vel til að miðla og kynna sér í kjölinn aðferðir og hugmyndir frá fyrstu hendi sérfræðinga á viðkomandi sviði. Jafnframt eru viðtöl við nemendur í áfanganum og Ármann ræðir líka við samkennara sinn Helgu Benediktsdóttur,“ segir Ármann.
Framsetning og uppbygging þáttanna er fremur einföld og líkt eftir hlaðvörpum sem Ármann hefur kynnt sér, einkum hlaðvarpinu Harry Potter and the Sacred text eða Harry Potter og helgiritin. Reynt er að hafa yfirbragðið nokkuð faglegt þó að um byrjendaverk á sviði hljóðvinnslu sé að ræða. Litlir tónlistarbútar úr smiðju hljómsveitar Ármanns, Mosa frænda, skreyta þættina.
Hægt er að kynna sér þetta áhugaverða verkefni hér.
Leiðsagnarnám og námskraftur nemenda
Hjördís Þorgeirsdóttir gerði starfendarannsókn um leiðsagnarnám og námskraft nemenda. Hjördís segir í kynningu á verkefninu að markmiðið hafi meðal annars verið að efla hana sjálfa faglega í starfi með því að innleiða leiðsagnarnám og byggja upp námsmenningu um námskraft nemenda. „Markmiðið var að byggja upp fjölbreytt, skapandi og gagnrýnið verkefnabundið nám með fjölbreyttum námsmatsaðferðum sem ykju virkni og ábyrgð nemenda á námi sínu. Rannsóknin var á byggð á aðferðafræði Jean McNiff um starfendarannsóknir,“ segir Hjördís.
Helstu niðurstöður voru að Hjördís hóf innleiðingu leiðsagnarnáms í kennslu sína með fjölbreyttum verkefnum, með því að setja markmið með öllum verkefnum og prófum, gátlistum fyrir mat á stærri verkefnum, munnlegri endurgjöf, einstaklingsmiðuðu námsmati, hópviðtölum við nemendur og stöðugum áminningum til nemenda um mikilvægi seiglu.
Hjördís upplifði ýmsa kosti við leiðsagnarnámið t.d. aukna virkni nemenda, meiri jákvæðni í samskiptum, betri hópanda og jákvæð viðbrögð nemenda við breytingunum. En hún upplifði einnig togstreitu í starfinu sérstaklega við að veita munnlega endurgjöf, hversu tímafrek samning og yfirferð skriflegra verkefna er og erfiðleika við jafningjamat nemenda.
Hægt er að kynna sér verkefnið hér og lesa skýrslu Hjördísar.