Verkefnisstjórn um gerð leiðarvísis að vinnumati grunnskólakennara hefur hafið störf

Fréttir|19. júní 2014

Verkefnisstjórn um gerð leiðarvísis um vinnumat og grunnskólakennara kom saman til fyrsta fundar 11. júní síðastliðinn. Verkefnisstjórnin er skipuð sex aðalmönnum, þremur frá Félagi grunnskólakennara, þremur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga auk áheyrnarfulltrúa frá Skólastjórafélagi Íslands. 

Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning 20. maí síðastliðinn og felur samningurinn í sér gerð nýs vinnumats kennara þar sem metinn verður sá tími sem kennari ver til skilgreindra verkefna.

Verkefnisstjórnin mun vinna að þessum málaflokki og verða helstu verkefni hennar: 

  • að skilgreina inntak og umfang einstakra hluta vinnumatsins
  • að vinna leiðarvísi með sýnidæmum
  • að styðja við innleiðingu
  • að veita álit og ráðgjöf
  • að safna í gagnabanka þekkingum og lausnum sem verða til. 

Drög að leiðarvísum eiga að liggja fyrir 1. nóvember 2014 en þá tekur við kynningar- og umsagnarferli sem varir út janúarmánuð 2015. Leiðarvísir um vinnumat verður síðan borinn undir atkvæði samningsaðila í síðasta lagi 20. febrúar 2015. 

Fyrir hönd Félags grunnskólakennara eiga sæti í verkefnastjórn þær Guðbjörg Ragnarsdóttir, varaformaður FG, Rósa Ingvarsdóttir, stjórnarmaður í FG, Hulda Hauksdóttir, fulltrúi í samningaefnd FG. 

Fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga eiga sæti í verkefnastjórn þeir Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri, Helgi Grímsson skólastjóri og Karl Frímannsson þróunarstjóri. 

Svanhildur Óskarsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands, situr í verkefnisstjórn sem áheyrnarfulltrúi og Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, er starfsmaður verkefnisstjórnar. 

Verkefnisstjórnin hefur sem fyrr segir komið saman á einum fundi. Var ákveðið að koma upp heimasíðu þar sem hægt verður að fylgjast með framgangi starfsins. Fundargerðir verða settar inn á heimasíðuna og auk þess verður hægt að senda inn fyrirspurnir og hugleiðingar til verkefnisstjórnar. Þar verður jafnframt safnað saman í gagnabanka þekkingu og lausnum sem verða til. 

Næsti fundur verkefnisstjórnar verður heils dags vinnufundur 27. júní næstkomandi og síðan verður fundað vikulega að loknum sumarleyfum 12. ágúst næstkomandi. Fundargerð fyrsta fundar má lesa hér.