Verkefnisstjórn tekin til starfa

Fréttir|30. maí 2014

Verkefnisstjórn, sem samkvæmt nýgerðum kjarasamningi hefur yfirumsjón með undirbúningi og innleiðingu nýs vinnumats kennara í framhaldsskólum, hefur tekið til starfa. Í henni eiga sæti fulltrúar Félags framhaldsskólakennara, Félags stjórnenda í framhaldsskólum, menntamálaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins. Verkefnisstjórnina skipa eftirtaldir fulltrúar:

  • Guðmundur H. Guðmundsson, fjármálaráðuneyti
  • Ársæll Guðmundsson, menntamálaráðuneyti
  • Ólafur Sigurðsson, menntamálaráðuneyti
  • Elna Katrín Jónsdóttir, Kennarasambandi Íslands
  • Reynir Þór Eggertsson, Kennarasambandi Íslands
  • Stefán Andrésson, Kennarasambandi Íslands

Verkefnisstjórn hefur aðstöðu í Skuggasundi 3 í Reykjavík og heldur fundi sína þar. Þrír fundir hafa verið haldnir um brýnustu viðfangsefnin sem sinna þarf svo vinnan við vinnumatið geti hafist. Ákveðið hefur verið að ráða starfsmann tímabundið til að aðstoða verkefnisstjórn við skipulag og utanumhald um verkið.

Verkefnisstjórnin hefur það meginhlutverk að halda áfram vinnu við nýtt vinnumat sem meginlínur voru lagðar um í kjarasamningi. Nýtt vinnumat í framhaldsskólum beinist alfarið að mati á vinnu við kennsluþáttinn í starfi framhaldsskólakennara og þarf þannig að meta vinnu við hvern námsáfanga sem kenndur er samkvæmt námskrá. Viðmið um vinnumat eru tilgreind í miðlægum kjarasamningi og vinnumatið er byggt á áfangalýsingu viðkomandi áfanga og unnið af kennurum og skólastjórnendum.

Verkefnisstjórn skal koma vinnumatsnefndum á fót og skilgreina verksvið þeirra en KÍ/framhaldsskóli annars vegar og menntamálaráðuneytið hins vegar leggja til fulltrúa í nefndirnar. Meginskipulag vinnumatsnefnda byggir samkvæmt ákvörðun verkefnisstjórnar á kennslugreinum eða kennslusviðum og verða þær fimm talsins. Fjórir fulltrúar sitja í hverri nefnd. Reiknað er með því að vinnumatsnefndir taki til starfa í ágúst.