Verkefni í öllum regnbogans litum

„Heimurinn er orðin svo opinn að umburðarlyndi hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú. Veggir skólastofunnar hafa opnast og við aukum víðsýni bæði nemenda og okkar sjálfra," segir Rósa Harðardóttir, skólastjóri Selásskóla, en skólinn er virkur eTwinning skóli.
Evrópska samstarfsnetið eTwinning er stysta leiðin að Evrópusamstarfi fyrir skóla á öllum námsstigum. Það veitir kennurum og nemendum tækifæri til að vinna stutt og einföld verkefni með skólum á meginlandinu.
Selásskóli í Árbænum er einn af þeim skólum sem hefur tekið eTwinning föstum tökum, en þar ræður Rósa Harðardóttir skólastjóri ríkjum. eTwinning verkefni af hvers konar tagi eru stór hluti af daglegu starfi skólans og þannig fá nemendur frá 1. upp í 7. bekk að kynnast nýrri menningu í gegnum samnemendur sína víðs vegar um Evrópu – allt frá Litháen til Liechtenstein.
Það skemmir alls ekki fyrir að Rósa sjálf er eTwinning sendiherra, en á hverju landsvæði eru reynslumiklir eTwinning kennarar reiðubúnir til að aðstoða nýja notendur. Hún var ekki að byrja í eTwinning í gær, en hún hefur nýtt sér krafta verkefnisins í sínum störfum frá 2007. „Þrátt fyrir að vera eTwinning sendiherra og skólastjóri er það ekki skylda að taka þátt í eTwinning verkefnum en mér þykir ákaflega vænt um þegar kennarar koma að fyrra bragði og vilja fá aðstoð við að finna verkefni og taka þátt. Nú hafa verið unnin um fimmtíu verkefni í skólanum frá því kennarar hér hófu að nýta sér eTwinning,“ segir Rósa, en Selásskóli hefur tekið mjög virkan þátt í samstarfinu allt frá því að hún hóf störf í skólanum árið 2018.
Skólastarfið brotið upp
Einn helsti styrkleiki eTwinning verkefna er hvað nemendur sjálfir hafa gaman af því að brjóta upp daglegt skólastarf. Að auka menningarlæsi og víðsýni nemenda fylgir eTwinning verkefnum sjálfkrafa, en Rósa sér þetta svart á hvítu í sínu starfi.
„Þegar boðið er upp á gagnkvæm samskipti nær verkefnið oft hámarki, en nemendum finnst það virkilega spennandi. Það gefur okkur tilefni til að kenna og fræða um svo marga hluti í samskiptum sem annars væri ekki mögulegt. Heimurinn er orðin svo opinn að umburðarlyndi hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú. Veggir skólastofunnar hafa opnast og við aukum víðsýni bæði nemenda og okkar sjálfra. Við aukum skilning og virðingu fyrir ólíkri menningu og uppruna með þátttöku í svona verkefnum. Með aukinni vinsemd getum við gert heiminn betri og ef rétt er haldið á spöðunum getur þátttaka í eTwinning verið leið til þess,“ segir Rósa.
Flest öll lönd Evrópu taka þátt í eTwinning samstarfinu, en fyrir nokkrum árum bættust nokkur nágrannalönd Evrópu við, eins og Jórdanía, Túnis og Armenía.
Evrópskt samstarf og starfsþróun
eTwinning getur reynst gæfulegt fyrsta skref í átt að evrópsku samstarfi fyrir skóla. eTwinning starf virkar einkar vel með Erasmus+ verkefnum, en íslenskir skólar sem eru virkir í Erasmus+ hafa nýtt sér þá skjótu leið í átt að samstarfi sem eTwinning býður upp á. Oft myndast sterk bönd milli skóla eftir verkefnin, „Ég hef mjög oft unnið aftur og aftur með sama fólkinu í mismunandi verkefnum og stundum heldur samvinnan áfram í Erasmus+ verkefnum.
Dæmi eru um að vinskapur myndist sem nær út fyrir skólasamstarfið, en ég vann til dæmis í mörg ár að eTwinning verkefnum með frönskum kennara sem hefur í tvígang komið til Íslands og ferðast hér um,“ segir Rósa.
„En eTwinning er svo miklu meira en samskiptaverkefni því það er í boði að taka þátt í starfsþróun eins og vinnustofum og viðburðum bæði í gegnum netið og með því að sækja viðburði erlendis. Það er einstök stund þegar maður fær tækifæri til að taka þátt í ráðstefnum á vegum eTwinning erlendis og hittir samstarfsaðila úr verkefnum og myndar nýjar tengingar.“
Verkefni í öllum regnbogans litum
Í mörgum tilfellum geta stutt, þemabundin verkefni verið þau sem heppnast hvað best, en vel þekkt er að ganga í verkefni tengd jólum, páskum, veðurbreytingum eftir árstíðum og svo mætti lengi telja. Í raun getur kennari á hvaða námsstigi sem er fengið þá flugu í höfuðið að morgni til að brjóta upp starfið - og verið kominn inn í verkefni síðar þann sama dag. Algengt er að tungumálakennarar nýti sér eTwinning til að tengjast nemendum frá öðrum löndum, og nýta þannig samstarfið til að gera tungumálanámið meira lifandi, svo sem í dönsku- eða spænskukennslu. Þá nýtist hvers kyns stærðfræðikennsla einkar vel í eTwinning. Selásskóli hefur tekið þátt í margs konar verkefnum frá 2015.
„Verkefnin hafa verið mjög fjölbreytt hvað varðar námsgreinar en ekki síður efnisinntak, lengd og umfang. Þau hafa tekið allt frá fáum kennslustundum upp í heilt ár í vinnslu. Vel skipulögð og hnitmiðuð verkefni heppnast best. Ef ljóst er í upphafi hvernig verkefnið á að vera, þátttakendur eru virkir allan tímann og stjórnandinn góður, heppnast verkefnið mjög vel,“ segir Rósa.
eTwinning samstarf er einfalt og aðgengilegt í og spennandi kostur til þess að brjóta upp skólastarfið og kynnast evrópskum starfsháttum. Rósa veit upp á hár hver er besta leiðin til að koma sér inn í hlutina, „Ég mæli með því að skólastjórar fái sendiherra eTwinning í heimsókn til að kynna þessa möguleika fyrir kennurum sínum.“
Allar frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Selásskóla sem er opinber eTwinning-skóli.
- Höfundur er Jóhann P. Ástavaldsson, sérfræðingur á mennta- og menningarsviði RANNÍS
- Vefsíða RANNÍS
- Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022