Verk- og tækninám í Skólanum okkar

Hver er staða verk- og tæknináms í landinu?
Hver er staða verk- og tæknináms í landinu? Fjallað verður um þetta mikilvæga málefni í fimmta þætti Skólans okkar sem verður frumsýndur á Hringbraut klukkan 20.30 í kvöld.
Tækniskólinn og Verkmenntaskólinn á Akureyri verða heimsóttir og meðal annars skoðuð ný og glæsileg Fablab stofa þar sem hægt er að búa til allt frá ráfrásum til sérhannaðra flísa,
Gestir í þættinum eru þau Þór Pálsson, aðstoðarskólameistari Tækniskólans og Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Hildur Elín segir eitt af því sem standi í vegi fyrir því að nemendum í verk- og tækninámi fjölgar séu skoðun mæðra á náminu.
Umsjónarmenn Skólans okkar eru þau Aðalbjörn Sigurðsson og Margrét Marteinsdóttir.
Þá er hægt að horfa á fyrstu fjóra þætti Skólans okkar á vef Hringbrautar.