Verður framtíðarkennarinn app?

Kennarasamband Íslands tekur þátt í Fundi fólksins 2017 sem að þessu sinni verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri dagana 8. og 9. september næstkomandi.
Kennarasamband Íslands tekur þátt í Fundi fólksins 2017 sem að þessu sinni verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri dagana 8. og 9. september næstkomandi. Þetta er í annað skipti sem Kennarasambandið efnir til viðburðar á Fundi fólksins.
Verður framtíðarkennarinn app? er yfirskrift viðburðar KÍ.
Lýsing: Menntakerfinu er bæði ætlað að auka skilvirkni og gæði. Fleiri börn og ungmenni eiga að fara glaðari, duglegri og hraðar í gegnum skóla og menntun. Samhliða skapar tæknin daglega nýja möguleika fyrir sveigjanlega og einstaklingsbundna kennslu – og – eins og sumir vilja halda fram – að það verði í raun engin sérstök þörf fyrir kennara í framtíðinni. Tölvu- og tæknivæðingin er oft nefnd sem lausn á þeim mótsagnakenndu kröfum sem gerðar eru til menntastofnana. En getur notkun tölvutækni í menntakerfinu aukið bæði skilvirkni og gæði? Hvað þarf til – þegar tæknin er notuð í kennslu? Verður kennarinn óþarfur í framtíðinni eða mun kennarahlutverkið gjörbreytast? Hvert mun menntun þróast?
Hvar: Salurinn Hamrar í Hofi, Akureyri.
Hvenær: Föstudaginn 8. september 2017, kl. 12:30 – 14:00.
Tegund viðburðar: Umræður.
Þátttakendur:
- Anna R. Árnadóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Krógabóli á Akureyri.
- Hans Rúnar Snorrason, grunnskólakennari í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit.
- Guðjón H. Hauksson, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum á Akureyri.
- Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi í Háskólanum á Akureyri.
Fundarstjóri: Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands.