Verðum að vera besta útgáfa af okkur sjálfum

Menntamálaráðherra hefur haft í mörg horn að líta á kjörtímabilinu; verkefnin hafa verið ærin og svo bættist við COVID-19 með ótal úrlausnarefnum. Menntastefna hefur í fyrsta skipti verið lögð fyrir Alþingi og stefnt er að því að hún taki gildi fyrir vorið.
Skólavarðan heimsótti Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í ráðuneytið. Fundurinn fór fram síðdegis daginn sem jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga hófst. Stærsti skjálfti dagsins mældist 5,7 á Richter og skók höfuðborgarsvæðið og Reykjanesið. Upplifun af skjálfta morgunsins og eftirköstum var eðli málsins samkvæmt fyrsta umræðuefni fundarins. En þegar sú umræða var tæmd var Lilja spurð út í fyrstu sporin í stól menntamálaráðherra fyrir rúmum þremur árum.
„Menntamálin eru stærsta efnahagsmál þjóðarinnar. Það var staðföst trú mín áður en ég kom til starfa í menntamálaráðuneytinu og þessi trú er enn sterkari í dag, ef eitthvað er,“ segir Lilja og bætir við: „ég nálgaðist verkefnin frá ýmsum hliðum, meðal annars með því að kynna mér hvaða menntakerfi á alþjóðavísu eru í fremstu röð þegar kemur að árangri og vellíðan nemenda. Ég skoðaði markvisst hvaða atriði einkenna menntakerfi þar sem þessi tvö atriði skora hátt. Við vitum að börnunum okkar líður frekar vel í skólanum en við höfum á sama tíma séð það þegar gengi barna í lesskilningi og náttúruvísindum er skoðað að við höfum verið að dragast aftur út; það sama á ekki við í stærðfræði,“ segir Lilja og bætir við að hún vilji öllum stundum vita hvar við stöndum í samanburði við aðra. „Á sama tíma verðum við alltaf að vera besta útgáfan af okkur sjálfum.“
„Ég vil nýta upplýsingar frekar en að þær verði eitt allsherjar leiðarljós. Ég vil vita hvar við stöndum í samanburði við aðra og nýta þá vitneskju til að finna leiðir til að gera okkar góða menntakerfi enn betra. Það kom mér á óvart hversu lítil samhæfing er í menntakerfinu. Það er í raun auðveldara að samhæfa efnahagskerfið en menntakerfið, en að mínu mati er menntatölfræði að minnsta kosti jafn mikilvæg og hagtölur. Kennarastarfið er mikilvægasta starfið í efnahagslegu tilliti og markmiðið á að vera að búa til jöfn tækifæri fyrir öll börn. Ef börn fá ekki viðeigandi nám og/eða stuðning þá myndast ójöfnuður, sem leiðir til óstöðugleika og þá er þetta orðið efnahagsmál.“
Aðgerðir til að fjölga kennurum
Kennaraskortur hefur verið áhyggjuefni mörg síðustu ár. Staðreyndin er að það vantar yfir þúsund leikskólakennara til starfa og verði ekkert að gert getur farið svo að eftir áratug skorti á þriðja þúsund kennara. Lilja tekur undir þetta.
„Eitt það fyrsta sem blasti við mér hér í ráðuneytinu var yfirvofandi kennaraskortur og að við því yrði að bregðast. Við fórum markvisst í að mæta þessari áskorun með samstarfi ríkisins, sveitarfélaga og stéttarfélaga. Meðal aðgerða sem við réðumst í var að bjóða nemendum á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám. Markmiðið með því er að hvetja nemendur til að ljúka námi á tilsettum tíma og að þeir hefji störf við kennslu sem fyrst að námi loknu. Annað sem við gerðum var að bjóða nemendum á lokaári að sækja um námsstyrk sem gæti skapað hvata til að klára námið,“ segir Lilja.
Áætlaður kostnaður ríkisins vegna þess er á bilinu 200 til 250 milljónir. Lilja segir starfstengda leiðsögn vera annað atriði sem skipti máli til að sporna við brotthvarfi nýútskrifaðra kennara úr starfi. „Þetta skiptir máli og ég tel mikilvægt að fjölga kennurum sem búa yfir þekkingu til að taka á móti nýliðum í kennslu. Góður stuðningur er lykilatriði og kemur í veg fyrir brotthvarf úr kennarastarfinu.“
Þegar ráðist er í viðamiklar aðgerðir af þessum toga segir Lilja mikilvægt að samstarf allra aðila sé gott. Nú þegar sjáist góður árangur, eða um 40 prósent fjölgun kennaranema ár eftir ár.
Lilja segir mikilvægt að kennaranemar sjái framtíð sína í kennslu.
„Við höfum átt afar gott samstarf við háskólana sem mennta kennara, kennaraforystuna og sveitarfélögin og allir eru staðráðnir í að ná utan um verkefnið. Ég hef í kjölfarið séð vaxandi áhuga á kennaranáminu enda er það mín skoðun að kennarar séu mikilvægasta fólkið í lífi barna fyrir utan foreldra, ömmur og afa. Þetta er ekki flókið.“
Lilja segir mikilvægt að kennaranemar sjái framtíð sína í kennslu. „Við verðum að búa svo um hnútana að starfsumhverfi kennara sé gott. Ég hef rætt þessi mál við menntamálaráðherra í öðrum löndum og allt ber að sama brunni; til þess að státa af framúrskarandi menntakerfi þarf að hlúa að starfsumhverfi í skólum og kennarar þurfa að upplifa að starf þeirra sé viðurkennt og metið í samfélaginu. Það er staðföst skoðun mín að gott menntakerfi sé eitt mesta jöfnunartæki samfélagsins og það besta sem við getum gert fyrir börn og ungmenni sé að bjóða upp á öflugt menntakerfi þar sem hver og einn fær tækifæri til að blómstra á sínum forsendum,“ segir Lilja.

Starfsþróun ákaflega mikilvæg
Áhersla á starfsþróun kennara og skólastjórnenda hefur farið vaxandi síðustu árin. Menntamiðju þekkja margir en hún hefur frá árinu 2012 verið vettvangur fyrir samstarf á sviði starfsþróunar, nýsköpunar og þróunarstarfs í menntakerfinu. Fyrir skemmstu var skrifað undir samkomulag um rekstur Menntamiðju til 2024 en þar koma saman auk ráðuneytisins Kennarasambandið, Menntavísindasvið HÍ, Reykjavíkurborg, Sambandið og Menntamálastofnun, auk Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Listaháskólans.
„Ég er gríðarlega stolt af þessu samstarfi og hvernig allir þessir aðilar taka höndum saman um að efla starfsþróun og fjárfesta í framtíðinni með áherslu á mikilvægi kennarans. Það er gríðarlegur styrkur fólginn í þessu samstarfi og engin spurning að sú starfsþróun sem er í boði verður íðarlega stolt af þessu samstarfi og hvernig allir þessir aðilar taka höndum saman um að efla starfsþróun og fjárfesta í framtíðinni með áherslu á mikilvægi kennarans. Það er gríðarlegur styrkur fólginn í þessu samstarfi og engin spurning að sú starfsþróun sem er í boði verður öflugri en áður. Við gerum þetta af þeirri einföldu ástæðu að það eru kennararnir sem drífa áfram framfarir í menntakerfinu – og til að það geti orðið þarf að skapa kennarastéttinni rými til að þróa sig í starfi og endurmennta. Þetta er ekki síður mikilvægt í ljósi þess að við erum á leið inn í hagkerfi þar sem reynir mikið á hug- og verkvit og nýjar lausnir. Þarna höfum við verkfærin á einum stað,“ segir Lilja og bætir við að þetta sé eitt af stóru málunum sem hún leggi mikla áherslu á og að ríkisstjórnin sé jafnframt meðvituð um mikilvægi málaflokksins.
„Það er svo mikið að gerast í tækniþróun og nýsköpun og sífellt eru að koma fram nýjar leiðir til að nýta tæknina í skólakerfinu. Við þurfum líka að að spá í hvernig við tökum á móti ungu fólki sem hefur alist upp í stafrænum heimi sem við gerðum ekki. Það er allt annað að kenna börnum sem eru fædd 2006 en 1999. Á þessu sviði þarf að hlúa sérstaklega að kennurum og í raun mun meira en hjá flestum öðrum starfsstéttum,“ segir Lilja.
Menntastefnan sögulegt plagg
Þegar Lilja er spurð hvað sé skemmtilegast í starfi ráðherra er hún fljót til svars. „Það er að heimsækja skóla og kynna mér skólastarf. Við þurfum að hlusta á skólafólk og heyra hvaða hugmyndir þau hafa í menntamálum, og auðvitað erum við ekki sammála um alla hluti. Þá tel ég afdráttarlaust að menntamálaráðuneytið eigi að hafa yfirsýn og vera í forystu í málefnum allra skólastiganna, jafnvel þótt ríkið sé ekki framkvæmdaaðili í leik- og grunnskólum. Ég hef frá upphafi lagt áherslu á þetta atriði en hlutirnir breyttust 1996 þegar grunnskólinn var fluttur til sveitarfélaganna. Þá lögðu forverar mínir í embætti kannski meiri áherslu á framhaldsskólann en gátu bent á Sambandið þegar rætt var um leik- og grunnskóla. Að mínu viti eiga leik- og grunnskólar að vera okkar öflugustu skólastig því þar er grunnurinn lagður að öllu sem á eftir kemur.“
Samstillt menntastefna og menntaumbætur verða að sögn Lilju að vera á borði ráðuneytisins. „Við ætlum samt ekki að ráða öllu heldur miklu frekar að vera leiðandi í menntaumbótum, vera aðilinn sem samhæfir og kallar fagfólkið að borðinu; svo sem fulltrúa háskólanna, kennaraforystuna og fulltrúa sveitarfélaganna.“
Að mínu viti eiga leik- og grunnskólar að vera okkar öflugustu skólastig því þar er grunnurinn lagður að öllu sem á eftir kemur.
Menntastefna til 2030 liggur fyrir Alþingi og er í þinglegri meðferð. Lilja segist binda vonir við að málið verði afgreitt á þingi innan fárra vikna. Þetta er í fyrsta sinn sem Menntastefna er lögð fyrir Alþingi.
„Markmið stjórnvalda með mótun menntastefnu til ársins 2030 er að veita framúrskarandi menntun með áherslu á þekkingu, vellíðan, þrautseigju og árangur í umhverfi þar sem allir skipta máli og allir geta lært,“ segir í kynningu á stefnunni á vef stjórnarráðsins.
„Við erum að leggja fram stefnu og tillögur að aðgerðum til tíu ára. Að baki er mikil undirbúningsvinna þar sem margir hafa komið að málum. Við efndum til fundaraðar 2018 og 2019 þar sem fulltrúar skólasamfélagsins; kennarar, stjórnendur, nemendur og foreldrar tóku þátt ásamt ýmsum fulltrúum hagsmunasamtaka og atvinnulífsins. Ég tel að við höfum náð að stilla vel saman strengi og ég tel að Menntastefnan eigi eftir að gagnast vel; við höfum á mörgu góðu að byggja en um leið er nauðsynlegt að horfa til framtíðar. Við erum að vinna í aðgerðaáætlunum, sumar eru komnar í gang en við höfum líka afgreitt mikilsverð atriði. Eitt af því er nýtt leyfisbréf til kennslu. Ég er afar ánægð með það enda hefur það í för með sér hreyfanleika milli skólastiga og aukin réttindi kennara. Þeir geta nú sérhæft sig í ákveðinni grein, til dæmis íslensku eða stærðfræði, og ef þeir uppfylla kröfur um færni og hæfni geta þeir fylgt ákveðnu aldursstigi eftir; fært sig milli skólastiga, á milli leik- og grunnskóla og milli grunn- og framhaldsskóla,“ segir Lilja.
Grípum krakkana strax
Umræða um lesskilning hefur verið nokkur undanfarin misseri og meðal annars rætt um stöðu barna og ungmenna sem hafa íslensku ekki að móðurmáli. Lilja segir stöðu þessara barna hafa verið sér hugleikna frá því hún sat í menntaráði borgarinnar árið 2006. „Ég hafði frumkvæði að því að gerð var könnun á hversu mörg tungumál voru töluð í skólum borgarinnar. Skýrslan gekk undir nafninu Liljuskýrslan. Þátttakan í menntaráði var góður undirbúningur fyrir starfið hér í ráðuneytinu,“ segir Lilja.

Eitt af því sem hefur verið sett á laggirnar eru stöðupróf fyrir krakka af erlendum uppruna. Þetta segir Lilja að sé tilraunaverkefni í efra Breiðholti og hafi gefið góða raun. „Stöðuprófið hjálpar kennurum að beita snemmtækri íhlutun þannig að hægt að sé að kalla eftir viðeigandi aðstoð. Kennarar hafa sagt að oft sjái þeir hvernig landið liggur á tveimur vikum og þá sé hægt að bregðast við – í stað þess að bíða eftir greiningu. Kerfið okkar hefur verið of greiningadrifið. Við þurfum að setja aukna fjármuni í verkefnið og treysta bæði kennurum og skólastjórnendum í leik- og grunnskólum til að aðstoða börnin og fá til þess beinan fjárstuðning. Málið er að grípa inn í strax,“ segir Lilja.
Börn sem hafa annað móðurmál en íslensku eru auðlind fyrir samfélagið.
Jöfn tækifæri allra barna til menntunar eru Lilju hugleikin. „Börn sem hafa annað móðurmál en íslensku eru auðlind fyrir samfélagið. Besta leiðin til að styðja þau er að hefjast handa í leikskóla, til dæmis með því að veita stuðning þegar kemur að málörvun. Við bindum vonir við að geta nýtt árangur sem næst í tilraunaverkefninu í Breiðholti þannig að öll börn njóti góðs af. Markmiðið er að öll börn búi við sömu tækifæri – það er það besta sem við getum gert fyrir samfélagið,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.