Verðum að standa vörð um menningar- og listmenntun

Fréttir|24. janúar 2025

„Leysum það inngildandi afl sem í tónlistar- og listaskólum býr, búum þeim vettvang til að geta lagt sitt af mörkum og, sköpum þeim þá sjálfsögðu og nauðsynlegu umgjörð sem í lögum felst,“ sagði formaður KÍ, í erindi á Málþingi um menningar- og listmenntun í gær.

Málþing um menningar- og listmenntun fór fram í hátíðarsal Háskóla Íslands í gær, fimmtudaginn 23. janúar. Auk Kennarasambands Íslands stóðu Íslenska UNESCO-nefndin, menningar- og viðskiptaráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti, List fyrir alla, listkennsludeild Listaháskóla Íslands og Menntavísindasvið Háskóla Íslands að málþinginu. Aðalfyrirlesari var Ron Davies Alvarez, stjórnandi Dreamorchestra, sem byggir á El Sistema aðferðafræðinni. Dagskráin var þétt og var Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands meðal mælenda. Erindi hans er birt í heild hér fyrir neðan:

„Ráðherrar og annað ráðstefnufólk. Það er stórt heiti á erindinu mínu og spjalli. Gildi menntunar. Bæði orð eru hlaðin merkingu sem þó við kannski hvert og eitt túlkum mismunandi. Hvort um er að ræða hugmyndina um gildi og virði þeirra í samfélaginu og þá líka um það hvað menntun í raun þýðir.

Ef við skoðum skilgreininguna á orðinu menntun í orðabókinni er hún þessi: „Það að afla sér þekkingar og lærdóms, venjulega með formlegu námi við viðurkennda skóla á öllum stigum“ en sennilega er hún þó á þeim stað í dag að við höfum miklu víðari skírskotun en þessa. Þá sérstaklega í þeim anga menntunar sem verið er að horfa í hér, menntun í menningu og listum.

Listgreinar þurfa frekari sess

Ég veit að ég þarf ekkert að fara mikið yfir það með ykkur sem sitjið hér, - þá upplifun sem við, sem þekkjum skólakerfin okkar, höfum varðandi menntun á þessu sviði. Frá því ég fór að vinna að menntun barna, hefur lengst af farið fram það, sem við getum ekki kallað neitt annað en varnarbaráttu í þeim efnum. Þá skiptir ekki máli hvort við horfum til þeirra námsþátta sem rúmast inni í grunn- og framhaldsskólum eða þátt tónlistarskólanna. Fögur orðræða um mikilvægið kemur ekki fram í þeim áherslum sem við sjáum í skólunum.

Skýr dæmi má finna í nýlegri könnun á meðal reykvískra grunnskóla þar sem um 80% skólanna uppfylltu ekki lágmarkstímamagn listgreina úr Aðalnámskrá. Niðurstöður þessar urðu efni umræðu í Skóla- og frístundaráði sem skiluðu bókunum, meiri- og minnihluta..., en ekkert breyttist og líklega er staðan verri í dag. Á sama hátt höfum við nýlega könnun sem sýnir að nemendum tónlistarskólanna hefur fækkað um 13% á fimmtán árum þó að mannfjöldaaukning á sama tíma hafi verið 20%.

Tækifærin til staðar 

En nú erum við bjartsýn. Við erum hér að tala um innleiðingu „Rammans“ frá UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ramma sem við hjá KÍ höfum rýnt í og ætlum veglegum sessi í okkar kynningum og samtölum þegar okkur verður sleppt úr kjaramálagíslingunni í Borgartúni. Í innleiðingu Rammans felast ótal tækifæri fyrir okkur til að gera betur.

Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar kemur m.a. fram  að styðja eigi við listir og menningu með myndarlegum hætti, það eigi að hefja sókn í menntamálum, styðja skólakerfið til að mæta þeim fjölþættu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir, tryggja inngildingu barna sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og snemmtæka íhlutun fyrir börn með fjölþættan vanda.

Listin inngildandi afl

Í nágrannalöndum okkar, er um þessar mundir, mikill kraftur í rannsóknar- og þróunarstarfi tónlistar- og listaskóla í samstarfi við tónlistarháskóla, þar sem áhersla hefur verið lögð á mikilvægt hlutverk tónlistar- og listaskóla sem inngildandi afl í sínu nærumhverfi, og þá í tengslum við þær áskoranir sem skólakerfið og samfélög standa frammi fyrir.

Hér höfum við tækifæri til að gera betur. Um langt skeið, hefur gerð heildarlaga um tónlistarskóla, verið meðal áherslna í stefnu Kennarasambands Íslands (KÍ) en við búum að þeim auði á Íslandi að eiga einstakt tónlistarskólakerfi. Nú er lag að gangast við mikilvægi tónlistar og lista, með því að treysta þeirra faglega og rekstrarlega umhverfi með nýjum lagagrundvelli.

Meðal þeirra skuldbindinga sem okkur færast í hendur í Ramma UNESCO er að stuðla að aukinni samvirkni menntunar, menningar og lista og styrkja sess listmenntunar og menningar innan stefnumörkunar, menntakerfa, og samfélagsins í heild. Lagastoð skiptir máli. Leysum það inngildandi afl sem í tónlistar- og listaskólum býr, búum þeim vettvang til að geta lagt sitt af mörkum og sköpum þeim þá sjálfsögðu og nauðsynlegu umgjörð sem í lögum felst.

Það felast tækifæri í því að viðurkenna afl tónlistar og lista. Nýtum þá auðlind sem í okkar tónlistar- og listaskólum býr. Við viljum byrja á því að gera tónlistarmenntun að skyldu á leikskólastiginu og styrkja menntunina á grunnskólastigi. Fyrst sjá til þess að þau viðmið sem nú gilda standist og svo auka þátt tónlistar í námi barna okkar. Til að einfalda útlistun á þeim ávinningi sem af því hlytist – þá væri það skref í að gera heiminn betri – í samræmi við Ramma UNESCO.“

Í hvirfilbyljum PISA-kannanna og örgum alls konar aðila um straumlínulögun skólakerfis að samræmdum könnunum, verðum við að standa vörð um menningar- og listmenntun. Því við vitum hvað hún gefur til samfélagsins.

„Það er kominn tími til að skilgreina tónlistar- og listaskóla sem hluta af okkar skólakerfi á tímum þar sem stöðugt aukin áhersla er á mikilvægi og gildi samstarfs, að nálganir séu heiltækar og að kerfin tali saman, ef varanlegur árangur á að nást. Ég ætla að leyfa mér að setja það í samhengi við mína reynslu sem foreldri. Ég fékk það lærdómsríka verkefni með einni fjögurra dætra minna, að hún átti í upphafi skólagöngu sinnar erfitt með það táknróf, sem kallað er eftir um allt samfélagið sem það sem lífinu stýrir.

Hún átti erfitt með að lesa bækur. Eins og önnur börn í svipaðri stöðu, grét hún við eldhúsborðið, faldi lesbækurnar og reyndi að kvitta sjálf í heimalestursbókina. Í skólanum hennar var öllum krökkum í fyrsta bekk kennt á blokkflautu. Vissulega öflugar kennslustundir –  ekki alltaf hreinir tónar – en  í þessum kennslustundum naut dóttir mín sín. Hún lærði strax að lesa á nótur og tónlistarkennarinn í grunnskólanum hvatti okkur og hana til að taka það verkefni áfram, sem við gerðum.

Hún gerði ekkert til að fela nótnabækurnar, flautan var æfð hvern dag og tónlistarskólakennarinn fór að láta hana syngja í tímunum. Úr varð að hún fór að læra söng og flautan breyttist í klarinett. Þegar svo kom að því að hún náði sér á flug í bóklestrinum fullyrði ég að það kom til, meðan annars vegna þess sjálfstrausts sem tónlistarnámið gaf henni, nokkuð sem hún býr enn að í dag. Þó að áskoranir tónlistarkennarana um að hún gæti komist í Sinfóníuhljómsveitina hafi ekki dugað til og klarinettið lokið leik í 6. bekk þá hefur söngnámið haldið áfram og átt þátt í að byggja upp hennar sjálfsmynd.

Þörfin á hæfum kennurum mikil 

Það hefur verið áhersla okkar í KÍ í umræðum undanfarin misseri og ár um farsæld í skólastarfi að halda uppi mikilvægi þess að menntun okkar Íslendinga sé á breiðum grunni. Í hvirfilbyljum PISA-kannanna og örgum alls konar aðila um straumlínulögun skólakerfis að samræmdum könnunum, verðum við að standa vörð um menningar- og listmenntun. Því við vitum hvað hún gefur til samfélagsins og það er okkar að koma öllum í skilning um gildi þeirrar menntunar.

Við innleiðingu Rammans er lykilatriði að huga að nauðsynlegum innviðum menntakerfisins. Það kemur kannski ekki á óvart að í Rammanum er komið inn á að takast þurfi á við skort á hæfum kennurum – að fjárfesta þurfi í kennurum.

Góð og fjölbreytt kennaramenntun er grundvallaratriði við innleiðingu Rammans. Við þurfum að taka höndum saman, tryggja að þróun kennaramenntunar sé í takt við þarfir samtímans, að allir kennaranemar hafi aðgang að listtengdri menntun í sínu námi og sérstaklega þarf að huga að menntun tónlistarkennara, samanber aðgerðaáætlun tónlistarstefnu þjóðarinnar, þar sem kveðið er á um átak í nýliðun tónlistarkennara til að mæta knýjandi þörf fyrir nýliðun.

 


 

Tónlistarkennurum er ekki að fjölga. Í sannleika sagt er það gríðarlegur áhyggjuvaldur hversu illa nýliðun gengur. Þróunin er sú sama á öllum skólastigum og – gerðum og öll kennarastéttin er að eldast, en í raun virðist nýliðunin ganga verst hjá tónlistarkennurum, líkt og við hjá Kennarasambandinu höfum reglulega bent á síðustu ár, og gerum sannarlega enn nú við kjaraborðið í kjaraviðræðum sem  snúast ekki síst um framtíðarsýn stjórnvalda, og ákall um að starf kennarans sé það aðlaðandi að við löðum til okkar nýtt og ungt fólk.

Þörfin á hæfum kennurum mikil 

Þar þarf enn stærra átak í tónlistarskólanum en við höfum áður séð. Eftir reynslu mína af kjarasamningsgerð Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) í síðustu lotu átta ég mig algerlega á því að skilningur stjórnvalda á starfi tónlistarkennara er í raun nær enginn. Það er grafalvarleg staða sem við  verðum að taka þátt í að snúa við.

Við verðum að gefa frá okkur skilaboð um mikilvægi menntunar í menningum og listum og að Adda, Palli og Bergþóra í tónlistarskólanum fari líka á eftirlaun líkt og aðrir kennarar.

Barátta okkar fyrir aukinni fagvitund er barátta fyrir börn og framtíðina. Gildi menntunar á að vera lagað að ólíkum þáttum og þörfum hvers einstaklings og við verðum að standa vörð um stéttina og sjá til þess að glimmerorð stjórnmálamanna og textar úr yfirlýsingum og römmum skrifræðisins skili sér til þeirra sem málið snýst um: Kennaranna sem leiða fagstarfið og nemendanna sem þess njóta, fyrir framtíð sem tryggir grunn menningar- og lista á sögueyjunni okkar góðu.

Áfram við.“