Verðugt verkefni að leiða öfluga stétt kennara

Fréttir|18. október 2021
Pistill

Magnús Þór Jónsson, skólastjóri og frambjóðandi til formanns Kennarasambands Íslands, skrifar.

Í komandi kosningum til formanns Kennarasambands Íslands verður valið á milli fjögurra ólíkra einstaklinga með víðan bakgrunn, sem eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á skólamálum og hugsjón fyrir því starfi að leiða kennara leik-, grunn-, tón- og framhaldsskóla. Ég er einn þeirra sem sækist eftir því verðuga verkefni að leiða þá öflugu stétt sem kennarar eru.

Ég gekk fyrst inn í kennslustofu í ágúst 1994 og fann frá fyrsta degi að ég hafði fundið ævistarfið. Á þeim tæpu þremur áratugum sem liðið hafa síðan, hef ég fært mig um vinnustaði og milli starfa innan grunnskólans og gegnt stöðu skólastjóra undanfarin ár.

Skólastarf er í grunninn lærdómssamfélag þar sem ólíkir kraftar koma saman til að tryggja nemendum gæðanám. Hugmyndafræðin byggir á því að allir séu í sama bátnum og rói í sömu átt, kennarar og stjórnendur – jafnt sem aðrar starfsstéttir innan grunnskólans. Nútíma stjórnunarhættir miða í auknum mæli að valdeflingu kennara. Sú leið nýtir styrkleika hvers og eins og stuðlar að þeim gæðum sem við sem samfélag viljum bjóða nemendum, þannig að þeir fái nám við sitt hæfi. Frá þeim tíma sem ég hóf að leiða hóp innan grunnskólans hef ég einsett mér að vinna samkvæmt þessu og útkoman verið jákvæð.

Nútíma stjórnunarhættir miða í auknum mæli að valdeflingu kennara.

Einlægur áhugi og sterk sjálfsvitund leiðir kennarahópa með framsýni að vopni. Leiðtoginn er á meðal jafningja en fer á undan og skerpir áherslur og leggur línurnar. Í raun er kominn tími til að skoða hvort hugtök eins og stjóri eða formaður tilheyri liðinni tíð, þegar orðið leiðtogi eða jafnvel fyrirliði gæti hentað betur til að lýsa hlutverki þeirra einstaklinga sem starfsmannahópar eða félagasamtök velja til að vera í fararbroddi.

Starf sem felst í því að leiða Kennarasambandið, samband faglærðra sérfræðinga, kallar á nútímavinnubrögð. Þar gilda sömu reglur og innan hvers lærdómssamfélags. Valdefling félaganna allra býr til þann kraft og þá orku sem leiðir til árangurs. Leiðtoginn er þjónn samfélagsins sem hann vinnur fyrir um leið og hann stýrir verkefnum, heldur þeim gangandi og skerpir sýn.

Starf sem felst í því að leiða Kennarasambandið, samband faglærðra sérfræðinga, kallar á nútímavinnubrögð.

Reynsla mín innan grunnskólans mun hjálpa mér að takast á við þau verkefni sem bíða nýs formanns Kennarasambands Íslands. Sama áhersla verður lögð á starfsemi Kennarasambandsins og í þeim þremur skólum sem hafa treyst mér til að leiða sína starfsmannahópa. Þá mun ég einnig geta sótt í áratuga langa reynslu mína af trúnaðarstörfum hjá þeim aðildarfélögum KÍ sem ég hef gegnt auk þess að hafa verið virkur í félagsstarfi, m.a. á vettvangi íþrótta þeirra samfélaga sem ég hef búið í gegnum tíðina.

Ég er sannfærður um að við munum ná samkennd í störfum Kennarasambands Íslands, öllum kennurum landsins til heilla, í lærdómssamfélagi sem leitt verður með stjórnunarháttum byggðum á sameiginlegri sýn og valdeflingu. Það virkar langbest í okkar kjarnastarfsemi, uppeldis- og kennslufræðilegri uppbyggingu náms. Samtalið er lykill að sameiginlegri sýn og með því næst bestur árangur!