Verðmætustu viðfangsefnin, en lökustu launin?

Pétur V. Georgsson, grunnskólakennari og frambjóðandi til formanns Félags grunnskólakennara, skrifar um kjaramál kennara.
Launakjör grunnskólakennara á Íslandi eru orðin þannig að stéttin er farin að mótmæla stöðunni með fótunum. Árið 2014 voru starfsmenn með réttindi til kennslu 96% af þeim sem störfuðu í kennslustörfum í grunnskólum landsins. Starfsfólk við kennslu er hér skilgreint sem skólastjórar, aðstoðarskólastjórar, deildarstjórar, grunnskólakennarar, leiðbeinendur og sérkennarar, skv. heimild 1 sem er unnin upp úr gögnum frá Oddi S. Jakobssyni, hagfræðingi KÍ.
Árið 2020 var þetta hlutfall komið niður í 84%. Kjaramál grunnskólakennara hafa verið á svo vondum stað svo lengi, að margir eru farnir að færa sig í önnur störf.
Mjög margir grunnskólar starfa orðið í teymum. Það að svo margir starfandi kennarar séu án menntunar, þýðir einfaldlega að hver menntaður kennari þarf að sinna stærri hluta af faglegu starfi teymisins, oft er sérþekking kennarans einfaldlega nauðsynleg til að vinna verkefnin sem fyrir liggja.
Framtíðin á Íslandi er björt. Hagstofan spáir 4.6% hagvexti á þessu ári og 2.7% árið 2023. Í þannig árferði verða til mörg ný störf á almennum markaði og fyrirtæki virðast eiga í vandræðum með að manna auglýstar stöður. Því fylgir oft að þau bjóða hærri laun. Það eru tækifæri fyrir þá sem vilja færa sig um starfsvettvang, líka kennara. Þetta er ein af skýringunum á því að fagmenntuðum kennurum í starfi hefur fækkað svona mikið og ef við snúum þessari þróun ekki við, blasir við neyðarástand í skólum landsins. Þar sem staðan er verst (nýjustu tölur eru frá 2020), á Suðurnesjum og Austfjörðum voru einungis um 70% kennara með réttindi árið 2020. Hvers vegna erum við ekki að tala um þetta sem samfélag? Finnst okkur bara í lagi að einn af hverjum þremur kennurum í sumum skólum, hafi bara áhuga á börnum.
Hvers vegna er þetta ekki stærsta kosningamálið í sveitarstjórnarkosningunum sem eru fram undan? Að sveitarfélögin hækki launin til að lokka til sín menntaða grunnskólakennara? Þetta skiptir alla foreldra máli. Kennarar eru að vinna með mestu verðmæti allra heimila en eru sennilega sá sérfræðingahópur á Íslandi sem er með lægstu meðallaunin.
Launaþróun/launakyrrstaða grunnskólakennara síðustu ára
Starfsmenn KÍ hafa fylgst með launaþróun undangenginna ára. Oddur Hagfræðingur hefur birt ýmis gögn sem hafa sýnt okkur í gegnum tíðina hversu illa okkur hefur gengið við samningaborðið, án þess að við höfum breytt okkar nálgun að neinu marki. Ég hef fylgst með þessum gögnum frá hruni, en staðan verður bara verri og verri.
Hér er brot af gögnunum frá Oddi sem sjást á eftirfarandi mynd:

Á þetta hefðum við átt að láta reyna í síðasta kjarasamningi, í ljósi þess samkomulags sem var gert við opinbera starfsmenn(meðal annars grunnskólakennara) árið 2016, þar sem undirritaður var samningur um að lækka lífeyrisávinnslu opinberra starfsmanna, geng loforði um það að laun og önnur kjör hjá hinu opinbera verði samkeppnisfær. Þar segir einnig að jafna þurfi: „laun einstakra hópa milli almenns og opinbers vinnumarkaðar og munu aðilar beita sér fyrir því að sérstaklega verði unnið að slíkri launajöfnun“. Heimild
Samningsaðilar ætluðu sér 6-10 ár til að ná þessu göfuga markmiði, en þessu samningur var gerður 2016: „Til að ná þeim markmiðum að leiðrétta laun milli markaða skal settur á fót samráðshópur skipaður þremur fulltrúum heildarsamtaka opinberra starfsmanna og þremur fulltrúum 4 launagreiðenda. Samráðshópurinn skal setja fram tillögur að áætlun um hvernig markmiðum um jöfnun launa skuli náð með útfærslu í kjarasamningum á 6-10 árum. Hópurinn skal einnig fylgja eftir framkvæmdinni. Á grundvelli þeirra kjarasamninga munu ríki og sveitarfélög skuldbinda sig til að leggja til fjármuni svo sett markmið náist á tilsettum tíma. Ef upp kemur óleysanlegur ágreiningur skal hann útkljáður í kjarasamningsviðræðum.“
Grunnskólakennarar eru ekki komnir af stað með þessa leiðréttingu launa, sem er vel að merkja í undirrituðum samningi, en grunnskólakennarar voru að binda sig með kjarasamningi með 25 þúsund króna hækkun fram til 31. mars 2023. Frá þeim tíma eru eftir þrjú og hálft ár til að ná þessari leiðréttingu innan þeirra 10 ára sem var rætt um hér á undan.
Þessi kjarasamningur félagsins er gerður á óvissutíma, verðbólga stefnir í 7,7% á þessu ári skv. spám og við sömdum til 15 mánaða. Ef við gefum okkur að verðbólgan verði 9% á þessum 15 mánuðum hefðu launin okkar miðað við meðallaun 2020 (579 þúsund) þurft að hækka um 52 þúsund til að halda verðgildi sínu, en við sömdum um 25 þúsund. Kaupmáttur launa grunnskólakennara minnkar á þessu tímabili. Þetta finnst mér bara ekki ásættanlegt.
Samstaða er eina leiðin til að lyfta Grettistaki
Næstu ár hafa mikið um það að segja hvernig skólarnir verða mannaðir. Ef launaþróun okkar verður svipuð og undanfarin ár, verður mikill flótti úr stéttinni. Það er velvilji í samfélaginu gagnvart kennurum og flestir skilja mikilvægi þess að sá sem kennir barninu þínu þarf að vera fagaðili, en ekki bara einhver sem hefur áhuga á börnum.
FG er öflugt félag og í hópi grunnskólakennara eru mjög margir eldhugar og frábærir sérfræðingar, sem eiga skilið hærri laun fyrir allt sem þeir leggja á sig.
Verkefni FG í næstu kjarasamningum eru risastórt. Stéttin verður að standa sameinuð og sterk og enn fleiri verða að leggja á sig vinnu í þágu stéttarinnar á næstu árum. Eitt af verkefnum framtíðarinnar er að gera starf kennara sýnilegra í samfélaginu. Öll þau erfiðu úrlausnarefni sem liggja á borði kennara í breyttu samfélagi, eru ekki á vitorði almennings. Meiri umræða um skólamál og það flækjustig sem er orðið í starfi kennara þarf að verða, líka til að auka skilning á stöðu okkar sem mikilvægra sérfræðinga í samfélaginu.
Trúnaðarmenn og svæðafélög innan KÍ hafa vel skilgreind hlutverk. Boðleiðir innan félagsins eru skýrar og margreyndar. Þessa vél þurfum við að hafa í eins góðu formi og við mögulega getum í verkefnum komandi ára og það hvílir að miklu leiti á herðum starfsfólks FG að sjá til þess að allt virkar sem best. Þetta risaverkefni sem er fram undan krefst þess að allir vinni að sama markmiði undir traustri forustu, sem er tilbúin í slaginn.
Ég býð fram krafta mína til að leiða kjarabaráttu FG á komandi árum. Félagið þarf að nálgast kjarasamninga framtíðarinnar öðruvísi en hingað til, til að tryggja að við höldum menntuðum kennurum í okkar hópi. Grunnskólakennarar þurfa að horfa fram á bjartari tíma í launum og mikilvægt er að bæta vinnuumhverfi okkar í náinni framtíð. Ef við ætlum að ná að leiðrétta kjör stéttarinnar vegna lækkunar lífeyrisréttinda, verður það t.d. að gerast í næstu kjarasamningum okkar, það er ekki mikill tími til stefnu. Næsti kjarasamningur svo ég vitni í félaga okkar: NÚNA ER NÆST! Við getum ekki beðið lengur.