Vellíðan veigamikil í kennarastarfinu

Fréttir|4. júlí 2023

Við búum öll yfir fjársjóði og með ákveðnum aðferðum er hægt að opna fyrir hann og þá gerast töfrar,“ segir Erla Súsanna Þórisdóttir í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar. Erla, sem er grunnskóla- og jógakennari, býður upp á vellíðunarnámskeið sérstaklega fyrir kennara og náms- og starfsráðgjafa, en einnig foreldra, einstaklinga, hópa og aðra forvitna fjársjóðsleitendur.

Það má eiginlega segja að Töfrakistan sé hugmyndabanki. Töfrakistan hefur ástríðu fyrir því að aðstoða einstaklinga og hópa að leysa sinn innri fjársjóð úr læðingi. Töfrarnir felast í því að við erum öll dýrmæt, einstök og búum yfir styrkleikum og allir eiga rétt á að upplifa hamingju og vellíðan,“ segir Erla Súsanna, sem er með mörg járn í eldinum.

Sum verkefni Töfrakistunnar tengjast beint kennurum og vellíðan þeirra, eins og fjarnámskeið þar sem áhersla er lögð á fræðslu og iðkun í bland, dagsnámskeið fyrir kennara sem eru í starfsmannaferðum í Kaupmannahöfn (en Erla er búsett í Danmörku), og svokallað kennara „retreat“, fimm daga námskeið sem haldið er á fallegum og friðsælum stað á Suður-Sjálandi í Danmörku í ágúst, þar sem einblínt er á vellíðan kennara og nemenda. „Segja má að ég sé með Töfrakistu fulla af alls kyns hugmyndum til að auðga lífið.“

Vegferðin að Töfrakistunni

Margt kom til sem leiddi til þess að Erla Súsanna fór að einbeita sér að vellíðan kennara og stofnun Töfrakistunnar. Eftir dvöl í Danmörku og starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöð samhliða námi ákvað Erla að verða dönskukennari. En áhuginn á andlegum málefnum var aldrei langt undan. „Ég hef frá því að ég var ung stelpa haft áhuga á andlegum málefnum og sá áhugi varð að ástríðu þegar ég missti móður mína úr krabbameini 2014. Það má segja að það hafi verið vendipunktur hjá mér en þá varð ég eins og svampur á allt sem tengdist andlegri heilsu“, útskýrir Erla, sem hóf þá ýmis konar jóga- og núvitundarnám.

Ég er sífellt að bæta við mig í þessum efnum og fór á síðasta ári í tvö jóganám. Ég elska hreinlega að læra og eitt af gildunum mínum í lífinu er að læra svo lengi sem ég lifi

Það urðu svo vendingar þegar Erla Súsanna lagði stund á jákvæða sálfræði. „Það var þá sem hugmyndin að Töfrakistunni kviknaði því mig langaði til þess að deila með öðrum því sem ég var að læra og hafði verið að gera í skólanum með nemendum mínum.“

Tómur tankur dugir skammt

„Ég held að kennarastarfið sé eitt óeigin­gjarnasta starf í heimi. Kennarar eru mjög gjarnir á að setja þarfir annarra framar sínum og við vitum öll að það er ekki hægt að keyra langt á tómum bensíntanki,“ segir Erla Súsanna.

„Ég veit hversu mikilvægt það er að huga að vellíðan sinni þegar maður sinnir eins ábyrgðarmiklu starfi og kennarar gera“, tekur Erla fram. „Ég hef reynt það á eigin skinni að örmagnast og finna vanmáttinn þegar heilsan brestur við of mikið álag. Ég hef hins vegar snúið því mér í hag og nýtti þá lífsreynslu meðal annars til að búa til námskeið fyrir kennara þar sem þeir fá tækifæri til að hlúa að sinni eigin vellíðan,“ segir hún.

„Rannsóknir sýna að ef hlúð er að vellíðan kennara þá skilar það sér í meiri vellíðan nemenda og þar með betri árangri því ef okkur líður vel þá fyrst skapast forsendur til náms.“

Líkaminn skilaboðaskjóða

Erla Súsanna segir að kennarastéttin þurfi sérstaklega að huga að ákveðnum atriðum varðandi vellíðan og kennarastarfið sem eigi ekki endilega við um aðrar stéttir. Skilgreining á vellíðan kennara snúi að viðbrögðum þeirra við vitrænum, félagslegum og tilfinningalegum aðstæðum sem tengist starfi þeirra og starfsgrein.

„Það skiptir fyrst og fremst máli að vera í góðum tengslum við sjálfan sig og þekkja sig út og inn. Líkaminn okkar er skilaboðaskjóða sem gefur okkur ýmis skilaboð alla daga, til dæmis um að hægja á eða setja mörk,“ útskýrir Erla. „Það ber að hlusta á viðvörunarbjöllurnar og velja sér rétt viðbragð. Við stjórnum allt að 80 til 90% af okkar eigin streitu sjálf og því skiptir máli hvernig við bregðumst við áreitinu. Þó er það persónubundið hversu þrautseigur hver og einn er gagnvart álagi. Þar kemur til flókið samspil erfða og umhverfis, auk reynslu og uppeldis hvers og eins.“

Ef við náum að næra það sem býr innra með okkur upplifum við vellíðan og þegar okkur líður vel þá tökum við betri ákvarðanir fyrir okkur sem skilar sér alltaf í betri heimi

Aukin meðvitund góð byrjun

Hér kemur jákvæð sálfræði, hliðargrein sálfræðinnar, að góðum notum. „Þar er talað um svokölluð jákvæð inngrip sem eru aðferðir eða æfingar þar sem meðvituðum athöfnum eða inngripum er beitt til að stuðla að jákvæðum breytingum í lífi fólks. Undir það flokkast til dæmis öndunaræfingar, jóga, núvitundaræfingar og hugleiðsla sem eru ótrúlega öflug verkfæri í því að efla líkamlega skynjun, róa taugakerfið og efla þrautseigju,“ segir Erla Súsanna.

„Það að gera hlutina með aðeins aukinni meðvitund eða núvitund er frábær byrjun á vegferðinni til aukinnar vellíðunar. Þetta er hraður heimur og ef við viljum meiri ró og meiri gæði þurfum við að hægja á. Þá er tilvalið að leita í andardráttinn til að beina sér aftur í núið og nota jákvæðar staðhæfingar eða möntrur til að minna sig á að lifa í núinu, eins og „hægja á“ og „ég er hér og nú,“ segir hún.
„Þá er tilvalið að skrifa í dagbók, sem er frábær leið til að flokka hugsanir og tilfinningar og einfalt verkfæri til að vinna með andlega heilsu.“ Meðal annars er hægt að nýta sér þakklætisdagbækur sem eru einfalt, skemmtilegt og aðgengilegt verkfæri.

Einnig getur verið gott að skrifa svokallaðan vellíðunarlista, eða: „lista með öllu því sem veitir þér vellíðan hvort sem það er vinnutengt eða persónulegt,“ segir Erla. Til þessa lista er svo hægt að grípa á hverjum degi og skipuleggja vellíðunarstundir, útskýrir hún.

Það er mér hjartans mál að kennarar fái tækifæri til að huga að eigin vellíðan

Það vex sem við veitum athygli

„Hugarfarið fleytir okkur langt og það er hægt að þjálfa upp jákvætt hugarfar. Það er gott að vísa í orðatiltækið; það sem þú veitir athygli vex og dafnar, í þessum efnum og ef þú veitir því athygli sem gengur vel í starfi er líklegra að það vaxi. Ég mæli því alltaf með að kennarar einblíni á það sem gengur vel í starfi og tali um það út á við og heima fyrir.“

„Venjur okkar eru það sem stýrir 88% af okkar gjörðum og því er vert að skoða þær gaumgæfilega og koma sér upp hjálplegum venjum sem auka vellíðan. Mitt ráð er því líka að gera meira af því sem gleður okkur. Það er gott að láta sig hlakka til einhvers í vinnunni og ef vel gengur á að fagna. Það á við um litla og stóra sigra.“

Vinnan og vellíðan nátengd

„Þar sem við verjum stórum hluta lífsins í vinnunni skiptir það máli að okkur líði vel í vinnunni,“ segir Erla. Þar spila þó margskonar breytur inn í sem kennarar hafa oft litla stjórn á, eins og vinnuumhverfi kennara.

„Það er þannig ekki einungis á ábyrgð kennaranna sjálfra að hlúa að vellíðan sinni heldur þurfa stjórnendur skólanna að vera mjög meðvitaðir um vellíðan starfsmanna sinna og ekki síst menntastofnunin sem slík, og þar má alltaf gera betur,“ segir Erla og bætir við: „Það hvað stjórnendur geta gert til að stuðla að meiri vellíðan starfsmanna sinna er svo efni í aðra grein.“

Hér er hægt að finna allar upplýsingar um Töfrakistuna og námskeið á vegum Erlu.

Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.