Velferð og vellíðan barna og ungmenna í skólastarfi

Í ár er ekki um að ræða hefðbundið málþing á Alþjóðadegi kennara og því voru nefndarmenn í skólamálaráði beðnir að setja niður nokkur orð um yfirskriftina í ár Velferð og vellíðan barna og ungmenna í skólastarfi.
Á ári hverju hefur skólamálaráð Kennararasambands Íslands staðið fyrir Skólamálaþingi. Í ár er ekki um að ræða hefðbundið málþing og því voru nefndarmenn í skólamálaráði beðnir að setja niður nokkur orð um yfirskriftina í ár Velferð og vellíðan barna og ungmenna í skólastarfi.
Hvernig tryggjum við velferð og vellíðan barna og unglinga í skólastarfi?
Fulltrúar Félags stjórnenda í framhaldsskólum skrifa:
Skólar eru afar stór og mikilvægur hluti af lífi nemenda og geta því haft mikil áhrif á velferð og vellíðan þeirra. Skólinn getur þó ekki tryggt að öllum nemendum líði vel, því það er margt annað sem kemur til, en hann getur stuðlað að þessum mikilvægu þáttum með því skapa þeim öruggt umhverfi, áhugavert, sveigjanlegt og skapandi nám og stuðlað að heilbrigðu félagslífi. Góður kennari gegnir lykilhlutverki í starfi skólans. Faglega sterkur og áhugasamur kennari, sem veitir nemendum sínum eftirtekt og skapar jákvætt og öruggt námsumhverfi, getur skipt sköpum í lífi barna og ungmenna.
Margir framhaldsskólar eru fjölmennir og mikilvægt að allir finni að þeir skipti máli. Ungmennin standa mörg hver á tímamótum, eru að skipta um skólastig og feta nýjar slóðir í lífinu, og standa frammi fyrir mörgum og flóknum verkefnum. Það er því mikilvægt að nemendur hafi til einhverra að leita innan skólans, til dæmis kennara, stoðþjónustu eða stjórnenda, ef eitthvað bjátar á. Nemendahópurinn í framhaldsskólum landsins er mjög fjölbreyttur og til að hægt sé að koma til móts við hann þarf skólakerfið að vera sveigjanlegt og bjóða upp á fjölbreyttar námsleiðir þannig að fötlun, tungumál, efnahagslegar aðstæður og búseta verði ekki hindrun í námi. Brýnt er að starfshættir skóla séu lýðræðislegir og að nemendur geti haft áhrif á skólastarfið.
Þó að skólinn geti ekki tryggt velferð og vellíðan barna og ungmenna í skólastarfi þá getur hann svo sannarlega lagt sitt af mörkum.

Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, í stjórn FS, og Alma Oddgeirsdóttir, fulltrúi FS í skólamálaráði KÍ.
Fulltrúi Félags grunnskólakennara í skólamálaráði skrifar:
Velferð og vellíðan barna og unglinga er fyrst og fremst tryggð með því að bæta starfsaðstæður kennara og styðja þá til starfsþróunar. Til að árangur náist þarf að huga að þeim sem vinna að velferð og vellíðan barna og unglinga alla daga innan veggja skólans. Nemendur þurfa að fá tækifæri til að virkja og nýta styrkleika sína í námi og byggja upp trausta sjálfsmynd með stuðningi kennara. Mæta þarf hverjum nemanda á hans eigin forsendum, stuðla að því að hann sé þátttakandi í eigin námi og veita honum tækifæri til að skipuleggja nám sitt, setja sér markmið og finna leiðir að markmiðum sínum. Öllum hæfniviðmiðum Aðalnámskrár er hægt að ná fram með mismunandi, fjölbreyttum, áhugaverðum og fræðandi verkefnum þar sem nemandinn er í forgrunni sem stýrimaður eigin náms. Ég hef séð á eigin nemendum hvernig viðhorfið breytist og áhuginn og námsfýsnin eykst við það eitt að fá á tilfinninguna að hann sé leiðtogi í eigin námi.

Hjördís Albertsdóttir, varaformaður FG og fulltrúi FS í skólamálaráði KÍ.
Fulltrúi Félags framhaldsskólakennara í skólamálaráði skrifar:
Það er á ábyrgð okkar sem í skólunum vinna að tryggja að nemendur hafi sem bestu aðstæður til að læra, finna sjálf sig og blómstra. Þess vegna er mjög mikilvægt að við kennarar fylgjumst vel með nemendum okkar. Við eyðum miklum tíma með nemendum í kennslustofunni og við vitum nánast um leið hvort eitthvað óvenjulegt sé í gangi hjá þeim.
Mjög mikilvægt er að grípa snemma inn í og athuga hvort að við getum aðstoðað nemandann, rætt við hann og bent honum á hvar hægt er að sækjast eftir aðstoð, til dæmis, hjá námsráðgjöfum eða sálfræðingi skólans . Við verðum að tryggja að námsumhverfið sé öruggt og að réttindi nemandans séu virt.
Við eigum að vera fyrirmyndir nemenda og sýna þeim að þeir geti treyst á okkur. Þetta eru hlutir sem, að mínu mati, tryggja velferð nemenda. Samskipti á milli kennara og nemenda eru afskaplega mikilvæg og ég held að það sé alltaf gott að ræða við nemendur og spyrja hvernig þeim gangi í námi og félagslega.
Hrós og hvatning eru hlutir sem nemendur þurfa á að halda því oftast eru þeir, sérstaklega nýnemar, mjög smeykir við að tjá sig og hafa skoðun til dæmis á kennslunni. Við þurfum að leiðbeina þeim og við getum sýnt þeim að það er allt í lagi að hafa skoðanir á hlutunum og hvetja þá til að tjá sig. Okkar framkoma við nemendur skiptir svo ofboðslega miklu máli og þegar við virðum, hrósum og hvetjum þá áfram, þá erum við einnig að búa til öruggt og skapandi námsumhverfi.
Síðast en ekki síst er félagslíf nemenda mikilvægur þáttur. Eins og kom í ljós í heimsfaraldrinum er nauðsynlegt að styðja við félagslíf nemenda þar sem einmitt það stuðlar að vellíðan nemenda í skólastarfi.
Simon Cramer Larsen, formaður skólamálanefndar Félags framhaldsskólakennara og fulltrúi FF í skólamálaráði KÍ.
Fulltrúi Félags stjórnenda leikskóla í skólamálaráði skrifar:
Við tryggjum velferð og vellíðan barna og unglinga í skólastarfi með því að setja velferð og vellíðan nemenda á öllum skólastigum í fyrsta sæti í menntastefnu þjóðarinnar.
Í sameiginlegum hluta Aðalnámskrár skólastiganna frá 2011 stendur „Fagmennska kennara snýst um nemendur, menntun þeirra og velferð“. Ég myndi vilja breyta þessari setningu aðeins og segja að fagmennska kennara eigi að snúast um nemandann, velferð hans og menntun því ég tel að velferð og vellíðan nemenda eigi að vera í öndvegi í öllum okkar störfum. Það er raunveruleg fagmennska.
Á síðustu árum hefur komið í ljós að ef nemendum líður vel farnast þeim betur. Þeir ná betur að tileinka sér nám og nýta sér það sjálfum sér og öðrum til heilla. Því er til mikils að vinna og ég myndi vilja sjá að á öllum skólastigum væri lögð áhersla á að kanna samskiptiafærni, hvernig börnum líður í skólanum, hvort og hvernig tengsl þau eru að mynda við börn og kennara, hvar áhugasvið þeirra liggur og vinna svo að skipulagi námsins og umbótum með þessa þætti í forgrunni.
Að mínu mati er það raunveruleg fagmennska þegar aðaláherslan í skólastarfi er á velferð og vellíðan allra í skólanum því það stuðlar að jákvæðri og umhyggjusamri skólamenningu þar sem öllum líður vel og gleði ríki.

Hulda Jóhannsdóttir, formaður skólamálanefndar FSL og fulltrúi FSL í skólamálaráði KÍ.
Fulltrúi Skólastjórafélags Íslands í skólamálaráði KÍ skrifar:
Í lífi hvers barns og ungmennis skipta kennarar miklu máli, þeir eru ekki bara draumasmiðir heldur eru þeir lykilaðilar í lífi barna og ungmenna alla skólagönguna. Öll börn og ungmenni þurfa að finna að þau tilheyri félagslegu umhverfi og hafi áhrif á líf sitt og skólagöngu og þar eru kennarar lykilfólk. Ísland er aðili að Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og því skiptir miklu máli að starfshættir séu í anda hans. Það þarf að hlusta á nemendur, gefa rödd þeirra vægi og tileinka sér þau vinnubrögð að raddir nemenda séu hluti af skipulagi skólastarfs. Við þurfum að láta börn og ungmenni finna að það sem þau segja skiptir máli og geti jafnvel haft áhrif á allan heiminn. Á nýliðinni netráðstefnu Utis voru þessir þættir fyrirferðamikið í umræðunni. Þar var mikil áhersla á valdeflingu barna, innihaldsríka menntun og að efla nemendur í að vera skapandi og hafa áhrif. Vil að lokum vitna í orð Prenille Ripp, „students voice is only meaningful if someone is listening.“

Arnbjörg Stefánsdóttir, formaður skólanefndar SÍ, og fulltrúi SÍ í skólamálaráði KÍ.
Fulltrúi Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í skólamálaráði KÍ skrifar:
Það efast enginn um að tónlistin er alþjóðleg og án landamæra og því má kannski segja að hún sé tungumál sálarinnar. Tónlistin er hverri manneskju nauðsynleg og margoft hefur verið sýnt fram á að tónlistarnám styður við hefðbundið bóknám. Tónlistarkennarinn getur örvað sköpunargáfu nemanda síns og virkjað hugmyndaflug hans og um leið leiðbeint honum hvernig nota megi tónlistina til að tjá tilfinningar sínar. Tónlistarnám kallar á öguð vinnubrögð en er nemandum jafnframt skjól í annríki hins hefðbundna skóladags, í tónlistartímanum á hann óskipta athygli kennara síns. Því má leiða líkur að því að velferð og vellíðan barna og unglinga í hinu almenna skólastarfi gæti verið svo miklu meiri væri tónlistarnám með öllu gjaldfrjálst og í boði fyrir alla óháð efnahag.

Ingunn Ósk Sturludóttir, varaformaður FT, og fulltrúi FT í skólamálaráði KÍ.