Velferð kennara og nemenda

Fréttir|6. apríl 2020
Pistill

Við þessar kringumstæður skiptir miklu máli að kennarar og stjórnendur fái allan hugsanlegan stuðning. Þeir starfa nú við aðstæður sem hafa aldrei hafa þekkst.

Þriðja vikan af skólastarfi í þessu mjög svo einkennilega ástandi er nú að renna sitt skeið og rétt vika til páska. Ástandið og þær ákvarðanir sóttvarnarlæknis að leik-, grunn- og tónlistarskólar ættu að starfa að svo miklu leyti sem unnt væri og að færa ætti allt nám í framhalds- og háskólum í stafrænt umhverfi hafa reynt mjög á allt skólafólk.

Með þessum ákvörðunum kom berlega í ljós hversu veigamikinn þátt í samfélaginu skólar og skólastarf skipa. Samfélag án skólakerfis er óhugsandi. Allir kennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur hvort sem þeir starfa í tónlistar-, leik-, grunn- eða framhaldsskólum leggja sig nú alla fram við að sinna nemendum af öllum stærðum og gerðum og láta koma eins lítið rof og mögulegt er í nám þeirra. Nægileg breyting á líf barna og ungmenna verður þegar þau eru í einu vetfangi svipt tómstundaiðkun og samveru við vini og skyldfólk.

Við þessar kringumstæður skiptir miklu máli að kennarar og stjórnendur fái allan hugsanlegan stuðning. Þeir starfa nú við aðstæður sem hafa aldrei hafa þekkst.

Nú sem aldrei fyrr leita á okkur skólafólkið eftirfarandi spurningar um hvernig megi sem best treysta velferð nemenda og starfsfólks skóla í þessu risastóra verkefni.

 

  1. Hvernig getum við verndað líkamlega, tilfinningalega og andlega líðan nemenda okkar sem og alls fagfólks skóla?
  2. Hvernig eigum við að taka á þeim áhrifum og aðstöðumun sem aðstæður í samfélaginu hafa á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra? Hvað getum við gert fyrir þá sem eru berskjaldaðir, fátækir og verða fyrir  einangrun og búa við óæskilegar aðstæður og fá ekki viðeigandi stuðning fullorðinna?
  3. Hvernig getum við tekist á við þarfir nemenda sem þurfa sérstakan stuðning við nám og hafa ekki aðgang daglega að stuðningskerfi sinna skóla?
  4. Verða þessir atburðir til þess að auka ójöfnuð og stækka bil milli þeirra sem geta fengið ríkulegan stuðning heima fyrir og þeirra sem eiga foreldra sem skortir  þekkingu, tíma og aðstæður til að veita börnum sínum námslegan stuðning? Hvernig getum við bætt aðstæður þeirra barna?

 

Sú staða sem nú er uppi sýnir mjög skýrt að þegar kennarar, börn og ungmenni mætast ekki lengur í skólunum verður skólastarfið ekki sambærilegt heldur er um einhvers konar nám á neyðarstigi að ræða. Kennsla og nám einungis í rafrænu umhverfi hefur mikla annmarka og skólinn sem jöfnunartæki virkar ekki sem skyldi. Því er mjög mikilvægt að kennarar hafi skýrt forræði yfir sinni kennslu og noti þær aðferðir sem þeim reynast bestar, börnum og ungmennum til góða. Við þessi skilyrði er ekki bæði hægt að tryggja gæði námsins og að allir fái kennslu við hæfi. Nemendur njóta ekki þess náms sem þeir eiga rétt á og og verða af því að umgangast samnemendur sína og kennara. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir eiga ekki sömu möguleika og aðrir. Tilkynningum til barnaverndar virðist auk þess hafa fækkað að undanförnu sem skýrist af minna eftirliti að hálfu skólakerfisins og er mikið áhyggjuefni.

Saman tökumst við á við þetta risastóra samfélagslega verkefni en því miður er alltaf hætta á að einhverjir ná sér ekki á strik í náminu og þau eftirköst munum við fást við á næstu misserum innan skólanna.

Lífsgangan er einhvern veginn þannig að henni fylgja ýmiss konar brekkur og vegamót sem erfitt er að sjá fyrir. Við óskum okkur ekki allra verkefna sem við verðum að takast á við en tökumst á við þau eigi að síður. Þetta verkefni er þannig ég hef með miklu stolti horft á fagfólk í skólunum leggja sig allt fram síðustu vikur. Við verðum áfram á vaktinni hvað varðar velferð og líðan barna og ungmenna bæði sem skólafólk en einnig sem foreldrar, afar og ömmur eða hluti af stærra samfélagi.