Velferð kennara í brennidepli á ráðstefnu KÍ

Með ráðstefnunni vill KÍ leggja áherslu á þau bjargráð og forvarnir sem nýta má til að auka velferð þeirra sem starfa í skólum
Byrgjum brunninn, bjargráð og forvarnir er yfirskrift ráðstefnu KÍ um vinnuumhverfismál sem haldin verður á Hótel Natura mánudaginn 4. nóvember.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er prófessor Ingibjörg H. Jónsdóttir í Gautaborg sem unnið hefur að viðamiklum rannsóknum á orsökum og afleiðingum streitu. Með ráðstefnunni vill Kennarasambandið leggja áherslu á þau bjargráð og forvarnir sem nýta má til að auka velferð þeirra sem starfa í skólum landsins og varpa ljósi á mikilvægi sálfélagslegs vinnuumhverfis.
Ráðstefnan verður í streymi og hefur heyrst að nýta eigi hana sem viðburð á starfsdögum kennara víða um land. Einnig munu fyrirlestrarnir verða aðgengilegir á nýjum vef KÍ síðar þannig að sýna má efnið þegar hentar.
Dagskrá
- 13:00 Setning Ragnar Þór Pétursson formaður Kennarasambands Íslands
- 13:05 Streita og streitutengd vandamál. Nýjustu rannsóknir um orsakir, afleiðingar og úrræði. Prófessor Ingibjörg Jónsdóttir, forstöðumaður Institutet för stressmedicin, Gautaborg.
- 14:20 Kaffihlé
- 14:45 Tökum þetta á seiglunni - eða hvað? Ingibjörg Loftsdóttir sviðstjóri hjá VIRK
- 15:15 Að sníða sér stakk eftir vexti, draumavinnuumhverfi leikskólakennara Sigrún Hulda Jónsdóttir leikskólastjóri Heilsuleikskólanum Urðarhóli
- 15:25 Samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust Leifur Garðarsson skólastjóri Áslandsskóla
- 15:35 Hlýja, hlustun, hagur - ábyrgð stjórnenda á vinnuumhverfi kennara Lára Stefánsdóttir skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga
- 15:45 Rými í tíma og rúmi, önnur störf og gæðakennsla Petrea Óskarsdóttir tónlistarkennari í Tónlistarskólanum á Akureyri og Tónlistarskóla Eyjafjarðar
- 15:55 Lífsgæði, heilsuhegðun og hagnýt bjargráð. Hvernig höldum við hamingju og gleði í krefjandi stöðu? Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur
- 16:40 Hundur í óskilum
- 17:00 Ráðstefnuslit
Skráið ykkur hér.