Vel sóttir fundir um lífeyrismál

Fréttir|18. janúar 2024

Upptökur af fræðslufundum Brúar og LSR eru nú aðgengilegar. Félagsfólk er hvatt til að horfa.

Tveir fræðslufundir um lífeyrismál hafa verið vel sóttir af félagsfólki Kennarasambandsins. Það var fræðslunefnd KÍ sem fékk fulltrúa frá lífeyrissjóðunum Brú og LSR til að halda erindi og kynna sjóðina. Fundirnir fóru fram á Teams og voru fundargestir samanlagt nærfellt tvö hundruð. 

Fyrir hönd Brúar fluttu fræðsluerindi þær Gerður Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri og Þóra Jónsdóttir sviðstjóri

Af hálfu LSR flutti Dísa Björg Jónsdóttir kynningu á sjóðnum. 

Upptökur af báðum fundum liggja nú fyrir og eru félagsmenn hvattir til að gefa sér tíma til að horfa. Félagsmenn KÍ á leikskólastiginu og í tónlistarskólum eru í Brú en grunnskóla- og framhaldsskólakennarar tilheyra LSR. 

 

Fræðslufundur Brúar – 11. janúar 2024


 

Fræðslufundur LSR – 17. janúar 2024