Vel sótt málþing um útgáfu námsgagna

Fréttir|20. febrúar 2024

Upptaka af málþingi um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna, sem fram fór síðastliðinn föstudag, er aðgengileg á vefnum. Félagsmenn KÍ eru hvattir til að kynna sér málið.

Mennta- og barnamálaráðuneytið stóð ásamt samstarfsaðilum fyrir málþingi um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna föstudaginn 24. febrúar 2024. Meginumfjöllunarefnið voru leiðir til að auka aðgengi nemenda að vönduðum námsgögnum.

Fjölbreyttur hópur fjölmennti á málþingið og kom sínum sjónarmiðum á framfæri í pallborðsumræðum og málstofum. Málþingið var liður í heildarendurskoðun mennta- og barnamálaráðuneytisins á fyrirkomulagi námsgagnaútgáfu í samræmi við aðgerð 9 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 um vönduð náms- og kennslugögn fyrir allt menntakerfið. Niðurstöðurnar verða nýttar við endurskoðun á lögum um námsgögn og aðkomu ríkisins.

Skipaður var spretthópur mennta- og barnamálaráðherra í janúar sem vinnur að heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna. Markmiðið hópsins er að leggja til aðgerðir sem ákvarða munu framtíðarfyrirkomulag námsgagnaútgáfu í nánu samstarfi við hagaðila. Athygli vakti hve fjölbreyttur hópur hagaðila sótti málþingið.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Á málþinginu kynntu frummælendur lærdóm af útgáfu námsgagna á sænska markaðnum annars vegar og hinum finnska hins vegar. Þá kynnti formaður spretthópsins greiningu hópsins á núverandi fyrirkomulagi og ýmsum vanköntum á kerfi sem tekið hefur litlum breytingum um langt skeið.

Horfa á málþingið