Vel heppnuð ráðstefna FÍS um ADHD

Fréttir|11. mars 2022

Ráðstefna og aðalfundur Félags sérkennara á Íslandi var haldinn í streymi, föstudaginn 25. febrúar s.l. Megin þema ráðstefnunnar var ADHD. Fjallað var um hvernig við getum mætt þörfum barna með ADHD í skólakerfinu. Það var vel mætt og var að heyra að þátttakendur væru á einu máli um að ráðstefnan hafi verið einstaklega vel heppnuð.

Ráðstefna og aðalfundur Félags sérkennara á Íslandi var haldinn í streymi, föstudaginn 25. febrúar s.l. Megin þema ráðstefnunnar var ADHD. Fjallað var um hvernig við getum mætt þörfum barna með ADHS í skólakerfinu. Það var vel mætt og var að heyra að þátttakendur væru á einu máli um að ráðstefnan hafi verið einstaklega vel heppnuð.

Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og varaformaður ADHD samtakanna sagði okkur sögur frá vettvangi leik- og grunnskóla. Jóna Kristín hefur mikla reynslu af kennslu barna með ADHD og gaf hún þátttkendum afar góð ráð til þess að nýta í námi og kennslu barna með ADHD. Hægt er að sjá kynningu hennar hér.

Katrín Þrastardóttir ART þjálfi sagði okkur frá því hvernig hægt er að nota aðferðir ART í kennslu. ART eða Aggression Replacement Training er hugmyndafræði þar sem nemendum eru kennd jákvæð samskipti í daglega lífinu. Unnið er kerfisbundið með tiltekin atriði. Þetta er gert með umræðum, hlutverkaleikjum og ýmis konar verkefnum. Hægt er að sjá kynningu hennar hér. 

Sigrún Jónsdóttir ADHD og einhverfu markþjálfi, Þroskaþjálfi ,Diplóma i Hugrænni Atferlismeðferð, Yoga Nidra kennari með 18 ára reynslu úr grunnskólakerfinu fjallaði um mismunandi birtingamynd ADHD og fylgiraskana. Hægt er að sjá kynningu hennar hér.

Eftir hádegi flutti Elísa Guðnadóttir sálfræðingur fyrirlestur um kvíða og ADHD. Elísa hefur um árabil verið ráðgefandi fyrir kennara og foreldra sem glíma við kvíða hjá börnum. Hægt er að sjá kynningu hennar hér.
Elísa benti okkur einnig á nokkrar greinar um efnið sem áhugavert er að lesa.
ADHD meðal barna og unglinga: Samsláttur við aðrar raskanir, Urður Njarðvík dósent HÍ.
ADHD and Anxiety: Clinical Significance and Treatment Implications, Frederick W. Reimherr og fl.
Anxiety in Children With Attention-Deficit/ Hyperactivity Disorder, Emma Sciberras og fl.
Sensory Overresponsivity and Anxiety in Children With ADHD, Stacey Reynolds og Shelly J. Lane

Heiðursverkefni FÍS var næst kynnt. Heiðursverkefni FÍS að þessu sinni hlaut hún Hlín Magnúsdóttir Njarðvík fyrir vefsíðuna sína Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir fjöruga krakka. Það eru 5 ár síðan Hlín stofnaði síðuna. Síðan þá hefur vefsíðan aldeilis vaxið og Hlín hefur deilt með sérkennurum, kennurum og öllum þeim sem vilja, óteljandi fjölda verkefna. Þar sem aðalfundurinn hjá okkur er ekki með hefðbundnum hætti, því miður, var ákveðið að fara og afhenda viðurkenninguna í byrjun vikunnar. Það mætti segja að það sé pínu lýsandi fyrir þann tíma sem við höfum lifað á undanfarin tvö ár, en plönin breyttust frá því að koma Hlín á óvart í kaffitímanum í vinnunni yfir í að banka upp á heima hjá henni. Við fengum að taka upp smá myndband af afhendingunni og er það hér meðfylgjandi.

Það voru svo Sigrún Harðardóttir lektor við HÍ og Ingibjörg Karsdóttir félagsráðgjafi hjá BUGL sem fluttu síðasta erindi dagsins. Þær kynntu niðurstöður út rannsókn sem þær stóðu að. Þær könnuðu upplifun og reynslu kennara af nemendum með námserfiðleika. Hægt er að sjá kynningu þeirra hér. (Vantar ennþá)