Vel heppnuð ráðstefna FÍS

Einhver fjölmennasta ráðstefna á vegum FÍS var haldinn á Grand Hótel mánudaginn 27. nóvember sl. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni var "Farsæld barna". Að loknu ávarpi Sædísar Óskar Harðardóttur formanns FÍS flutti forseti Íslands Hr. Guðni Th Jóhannesson stutt erindi. Hann hvatti þátttakendur til dáða í sínum störfum og óskaði þeim ánægjulegs dags. Lesa meira...
Einhver fjölmennasta ráðstefna á vegum FÍS var haldinn á Grand Hótel mánudaginn 27. nóvember sl. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni var "Farsæld barna".
Að loknu ávarpi Sædísar Óskar Harðardóttur formanns FÍS flutti forseti Íslands Hr. Guðni Th Jóhannesson stutt erindi. Hann hvatti þátttakendur til dáða í sínum störfum og óskaði þeim ánægjulegs dags.
Erla Stefánsdóttir og Sandra Zeilisa verkefnastjórar í Mixtúru SFS tóku upp þau erindi sem fékkst leyfi til þess að birta. Stjórn FÍS vill þakka þeim kærlega fyrir þeirra góðu vinnu. Hér er hægt að horfa á erindin.
Þá var komið að dagskrá og það var Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi sem byrjaði og fjallaði um börn sem glíma við flókin þroskaáföll (e. Complex trauma) út frá módelinu Attachment and Resilience Based Model (Tengslamyndun, Tilfinningastjórnun, Færniþættir) sem styður starfsfólk við að skyggnast á bak við tilfinningalegan óstöðugleika barna. Í umhverfi þar sem skilningur, umhyggja, samhygð og öryggi er ríkjandi aukast líkur á því að börn sem glíma við þroskaáföll nái ró.
Jóhanna fór yfir leiðir sem starfsmenn geta nýtt sér til að setja tilfinningarlegan óstöðugleika barna í merkingarbært samhengi og bregðast við af yfirvegun, rósemd og viðeigandi festu sem eykur mjög líkur á að þörfum þessara barna sé mætt á þroskavænlegan máta. Hún fjallaði einnig um helstu styrkleika og hamlandi þátta hjá starfsfólki almennt. Þætti sem aukið geta líkur eða dregið úr líkum á að börn með tengslavanda finni fyrir nauðsynlegu öryggi og stöðugleika hjá starfsfólki.
Ekki mátti taka erindi hennar upp en hér er hægt að skoða skjákynningu hennar.
Karitas Ósk Bjarkadóttir Laxdal félagsráðgjafi á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar fjallaði um niðurstöður MA rannsóknar sinnar sem ber heitið: "Farsældarlögin eiga að tryggja réttindi barna samkvæmt Barnasáttmálanum": „Nú ætlum við að innleiða nýja hugsun um farsæld barna". Karítas sagði á áhugi hennar á verkefninu Barnvæn sveitarfélög og farsældarlögum hafi verið til þess að hún ákvað að kanna það efni frekar í rannsókn sinni. Hún hefur mikinn áhuga á réttingum barna og þátttöku þeirra í samfélaginu. Þá hefur hún brennandi áhuga á að samræma verkferla til farsældar börnum. Hér má sjá kynningu hennar.
Þá var komið að kaffihléi, á gangi hótelsins voru nokkrir sýnendur búnir að koma sér vel fyrir og kynntu ýmis gögn sem hægt er að nýta í skólastarfi.
Hanna Dorothéa Bizouerne sálfræðingur hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni var svo með eirindi fram að hádegishléi. Í erindi sínu fjallaði hún um kvíða hjá börnum, hjálplegar leiðir sem kennarar geta nýtt í vinnu sinni með börnum með kvíðavanda, leiðir til að fá foreldra þeirra í samvinnu og úrræði sem stendur þessum fjölskyldum til boða. Hanna hefur sérhæft sig í meðferð við hegðunar- og tilfinningavanda hjá börnum, úrvinnslu áfalla og greiningar á frávikum í taugaþroska. Kynningu hennar má nálgast hér.
Í hádeginu bauðst þátttakendum að kaupa sér mat af afar glæsilegu jólahlaðborði hótelsins.
Unnur Helga Ólafsdóttir og Berglind Hauksdóttir, sérfræðingar á farsældarsviði Barna- og fjölskyldustofu hófu seinnipart ráðstefnunnar og fjölluðu um það hvernig breytt nálgun í samþættri þjónustu á að birtast börnum og fjölskyldum þeirra. Áhersla verður lögð á samræmingu þjónustu á landsvísu og skilvirk vinnubrögð fagaðila í umhverfi barns. Einnig fjölluðu þær um mikilvægi valdeflingar og þátttöku foreldra og barna í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. “Barnið verður hjartað í kerfinu” var yfirskrift erindi þeirra. Hér má sjá skjákynningu þeirra.
Sólveig Sigurðardóttir, deildarstjóri farsældarþjónustu barna og Dagný Hauksdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarmála á Akranesi.
fjölluðu um innleiðingu farsældarlaganna á Akranesi. Akranes hefur forskot á önnur sveitafélög vegna þess að það var tilraunasveitafélag í innleiðingu. Farsældarlögin boða breytingar í þjónustu við börn og fjölskyldur. Þeir sem koma að þjónustu við barn á einn eða annan hátt, eiga að fylgjast með velferð og farsæld barnsins, meta þörf þess fyrir þjónustu og bregðast við á skilvirkan hátt um leið og þörf krefur. Þessum aðilum ber að hafa samráð sín á milli með það að markmiði að þjónustan sé samfelld og samþætt , þ.e.a.s. að allir séu að vinna saman og að sameiginlegum markmiðum til að tryggja farsæld og velferð barns. Hér er að finna kynningu þeirra.
Ragnar Þór Pétursson, kennari í Norðlingaskóla flutti að síðustu hugvekju um farsæld barna. Hann vill meina að samkvæmt Aristóteles séu farsæld börn séu ekki til. Aristóteles (384–322 f.Kr) var einn mesti heimspekingur og vísindamaður fornaldar. Hann var vel að sér í öllum greinum heimspekinnar, en auk þess var hann einn fremsti náttúruvísindamaður síns tíma, afkastamikill höfundur og, að því er sagan segir, framúrskarandi rithöfundur
Kl. 15:30 var ráðstefnunni slitið af Jónínu Rós Guðmundsdóttur ráðstefnustjóra.
Að vanda var tekið mikið af ljósmyndum sem sjá má hér.
