Vel heppnuð fundaherferð
Fréttir|9. apríl 2014
Fundaherferð í tengslum við verkefnið „Framtíðarsýn leikskólans“ lauk í morgun með fundi í HK heimilinu í Kópavogi. Alls voru haldnir átta fundir um allt land í tengslum við verkefnið. Þátttakendur voru um 400 talsins, þar á meðal leikskólakennarar, stjórnendur, foreldrar, stjórnmálamen og embættismenn.
Framundan er að vinna úr því efni sem safnað var á fundunum. Niðurstöðurnar verða nýttar af stéttarfélögunum og rekstraraðilum til að bæta starfsumhverfi leikskólanna með hag leikskólabarna í fyrirrúmi. Vonast forráðamenn FL og FSL til að þar verði m.a. til gott innlegg í verkefnið „Þjóðarsátt um menntun“ sem Kennarasambandið vinnur að þessa dagana.