Vel heppnaður fræðsludagur

Fræðsludagur FÍS sem haldinn var fimmtudaginn 10. ágúst s.l. heppnaðist afskaplega vel. Við ætluðum að vera í Gerðubergi en fengum að vita það á síðustu stundu að komin væri upp mygla í húsnæðinu. Heppnin var með okkur og við fengum inni hjá Skóla- og frístundasviði borgarinnar í Borgartúni. Það var þröngt um okkur vegna fjölmennis, en það er auðvitað bara lúxusmál sem við leystum vel.
Fræðsludagur FÍS sem haldinn var fimmtudaginn 10. ágúst s.l. heppnaðist afskaplega vel. Við ætluðum að vera í Gerðubergi en fengum að vita það á síðustu stundu að komin væri upp mygla í húsnæðinu. Heppnin var með okkur og við fengum inni hjá Skóla- og frístundasviði borgarinnar í Borgartúni. Það var þröngt um okkur vegna fjölmennis, en það er auðvitað bara lúxusmál sem við leystum vel.
Dagurinn hófst á því að formaður FÍS Sædís Ósk Harðardóttir bauð alla velkomna og svo tóku þær við Guðrún Björk Freysteinsdóttir og Sesselja Árnadóttir frá Austurmiðstöð í Reykjavík. Þær fræddu okkur um farteymi á vegum Reykjavíkurborgar. Farteymin hafa það að markmiði að veita þjónustu við börn á vettvangi. Leitað er lausna í hverjum bekk grunnskóla fyrir sig og ávallt gætt þess að vera í góðu samstarfi við barnið, foreldra og kennara. Hægt er að fræðast meira um farteymin hér.
Þá var komið að Laufeyju Erlendsdóttur velferðarkennara í Gerðaskóla í Garðinum. Laufey hefur síðustu ár verið að feta sig áfram í kennslu með notkun núvitundar, hugleyðslu og jóga. Meginmarkmið er að auka vitund og velferð nemenda í Gerðaskóla með því að skapa aðstæður og rými í stundatöflu til að stunda slíka kennslu. Afar áhugavert framtak hjá Laufeyju. Hér má kynnast hennar starfi nánar.
Gleðiskruddan var svo næst, en gleðiskruddurnar eru þær Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðsdóttir. Gleðiskruddan er vefsvæði, bók, námskeið og sjónvarpsefni með verkfærum til þess að vinna á jákvæðan hátt og læra aðferðir til þess að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan barna og ungmenna. Gleðiskruddan færir foreldrum, kennurum og fl. í hendurnar verkfæri til þess að bæta líðan og samskipti á jákvæðan hátt. Þetta er afar áhugavert viðfangsefni hjá þeim Yrju og Marit og virkilega hægt að mæla með Gleðiskruddunni.
Eftir hádegi var svo komið að Bergljótu Gyðu Guðmundsdóttur sálfræðingi, Í erindi sínu fjallaði hún um geðheilbrigði og vellíðan í skólastarfi. Hún útskýrði vel hvað felst í þrepaskiptum stuðningi á 1. stigi þjónustu (leik- grunn- og frístundastarfi) og geðrækt bæði á fræðilegum og hagnýtum nótum. Hún jók verulega á þekkingu allra viðstaddra á því hvernig má stuðla að farsælli geðheilsu barna og ungmenna með markvissu geðræktarstarfi. Það var afar áhugavert að hlusta á Gyðu og taka þátt í hópavinnu sem hún bauð upp á, en því miður er ekki hægt að birta skjákynningu hennar.
Stjórn Félags sérkennara á Íslandi þakkar fyrirlesurum og þátttakendum kærlega fyrir ánægjulegan dag. Við tókum fullt af myndum sem hægt er að skoða hér.