Vel heppnað námskeið skólastjórnenda

Fréttir|16. september 2020

Fjallað var um stjórnsýsluna út frá hinum ýmsu forsendum, forystu, stefnumótun og leiðtogafærni ásamt því að rafræni stjórnandinn var sérstakt viðfangsefni.

Skólastjórafélag Íslands stóð fyrir námskeiði fyrir skólastjórnendur sem er ætlað nýjum og reyndum skólastjórnendum skólaárið 2020 – 2021. Námskeiðið var haldið í Borgarnesi dagana 14. – 15. september. Uppselt var á námskeiðið og voru þátttakendur 45 talsins og komu þeir alls staðar að af landinum.

Námskeiðið fer fram í tveimur lotum og voru viðfangsefni þessarar fyrri lotu fjölbreytt, praktísk og fagleg. Fjallað var um stjórnsýsluna út frá hinum ýmsu forsendum, forystu, stefnumótun og leiðtogafærni ásamt því að rafræni stjórnandinn var sérstakt viðfangsefni. Þá deildi nýr skólastjóri reynslu sinni af því hvernig er að taka við nýjum skóla og þeim krefjandi og fjölbreyttu viðfangsefnum sem nýir stjórnendur standa frammi fyrir.

Mikilvægur þáttur í þessu námskeiði er að byggja upp sterkt tengslanet öflugra einstaklinga sem svo sannlega styrkir félagið og félagsmenn þess. Síðari hluti námskeiðsins fer fram í mars á næsta ári.