Vel gengur að fjölga kennurum

Alls útskrifuðust 454 kennarar hér á landi á síðasta ári og er það 160 prósent aukning ef miðað er við árin á undan. Frá þessu er greint í nýrri frétt á vef Stjórnarráðsins.
Alls útskrifuðust 454 kennarar hér á landi á síðasta ári. Það er 160 prósent aukning miðað við meðaltal áranna 2015-2019. Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir jafnframt að árið 2019 hafi verið sett af stað fimm ára átaksverkefni um nýliðun kennara. „Markmið þess er að fjölga kennurum á öllum skólastigum og auka gæði náms og kennslu í íslensku skólakerfi með farsæld nemenda að leiðarljósi. Frá því að átaksverkefnið hófst fyrir rúmum þremur árum hefur rík áhersla verið lögð á að fjölga þeim sem velja kennaranám og auka skilvirkni námsins svo kennaranemar útskrifist á tilsettum tíma. Á þeim tíma hefur aðsókn í kennaranám farið fram úr björtustu vonum og brautskráningum fjölgað samhliða," segir á vef Stjórnarráðsins.
Nú býðst kennaranemum 50 prósent launað starfsnám á lokaári námsins. Njóta nemarnir þar með faglegrar leiðsagnar reyndra kennara og samhliða þessu hafa reynslumiklir kennarar verið hvattir til að afla sér sérhæfingar í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf.
Boðið er upp á kennaranám við fjóra háskóla hér á landi, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri bjóða upp á fjölbreyttar námsleiðir í kennaranámi á bæði grunn- og meistarastigi sem leiðir til kennsluréttinda. Við Háskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands er boðið upp á kennaranám á meistarastigi, annars vegar íþróttakennaranám við HR og hins vegar nám í listkennslu eða almennri kennslu við Listaháskólann.
Auk þess bjóða háskólar upp á svokölluð Menntafléttunámskeið ætluð kennurum, starfsfólki á vettvangi frítímans og fagfólki sem starfar við menntun. Fjöldi umsókna í kennaranám varpar ljósi á áhuga á kennaranámi, hvernig til hefur tekist að kveikja áhuga á kennarastarfinu og mikilvægi þess.

Kennurum hefur fjölgað umtalsvert síðan átaksverkefnið hófst. Myndin er fengin að láni á vef Stjórnarráðsins.
Áður en átaksverkefnið hófst hafði aðsókn í kennaranám dregist saman og við blasti vaxandi kennaraskortur. Árið 2018 sóttu 855 um inngöngu í kennaranám, árið 2019 voru umsóknir tæplega 1.300 en árið 2020 virðist hafa verið metár þegar fjöldi umsókna fór í ríflega 1.700. Draga má þá ályktun að nokkrir samverkandi þættir hafi haft þar áhrif, svo sem sameiginlegt markaðsátak ráðuneytis, háskólanna, sambandsins og KÍ, undir hatti Komdu að kenna, breytingar á kennaranámi í kjölfar nýrra kennaralaga, framlengdan umsóknarfrest háskóla vorið 2020 og áhersla á inntöku nýnema í janúar 2021 sem lið í mótvægisaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19.
Einn þeirra mælikvarða sem varpar ljósi á árangur aðgerða er fjöldi brautskráðra kennara ár hvert. Á myndinni hér að ofan sést fjölgun útskrifaðra kennara frá því að átaksverkefnið hófst en þegar horft er á fjölda brautskráðra kennara í ár borið saman við meðaltalið frá 2015 til 2019, þá er aukningin 160%.
Margir leggjast á árarnar
Átaksverkefnið er unnið í samstarfi mennta- og barnamálaráðuneytis, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Listaháskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og kennaranema.
„Með því að leggjast á eitt hefur náðst mikill árangur við að auka aðsókn í kennaranám og að fjölga útskrifuðum kennurum, enda verkefnið brýnt. Auk fjölgunar kennara þarf einnig að stuðla að því að nýútskrifaðir kennarar ráði sig til kennslu að námi loknu og hverfi ekki á brott á fyrstu 3–5 árum í starfi. Þar skiptir leiðsögn við nýliða, starfsumhverfið og tækifæri kennara til þess að vaxa og þróast í starfi miklu máli," segir í frétt Stjórnarráðsins.