Vel á annað hundrað kennarar í verkfallskaffi

Fjölmennt og góðmennt var í samstöðukaffi sem fór fram í höfuðstöðvum KÍ, við Borgartún, í morgun. Mikill barátthugur í öllum viðstöddum.
Ríflega 150 kennarar, sem eru í verkfalli, komu í Stórholt, sal Kennarasambandsins, í morgun. Flestir kennararnir voru úr skólum á höfuðborgarsvæðinu en kennarar í verkfalli hittast einnig úti á landsbyggðinni.
Verkföll hófust, sem kunnugt er, í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum, um liðna helgi.
Kennarar í fjórum leikskólum eru aftur í verkfalli en þeir voru einnig í verkfalli á liðnu hausti. Þetta eru kennarar í Leikskóla Seltjarnarness, Drafnarsteini í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ og Ársölum á Sauðárkróki. Þá voru kennarar í Árbæjarskóla, Garðaskóla og Heiðarskóla búnir að vera viku í verkfalli þegar aðgerðum var frestað 29. nóvember síðastliðinn.
Skoða lista yfir skóla í verkfalli
Kaffi og með því
Kennarasambandið mun hafa opið hús fyrir félagsfólk í verkfalli á mánudögum og miðvikudögum, frá 9 til 12. Heitt verður á könnunni og bakkelsi á borðum. Félagsfólk er hvatt til að mæta, njóta samveru við kollega og efla baráttuandann.