Vekjum athygli á því sem vel er gert í skólastarfi

Fréttir|26. maí 2026

Íslensku menntaverðlaunin verða veitt sem fyrr síðar á árinu.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístunda starfi og auka veg menntaumbóta.


Íslensku menntaverðlaunin eru veitt árlega við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Opnað hefur verið fyrir tilnefninga til verðlaunanna þetta árið. Hægt er senda inn tilnefningu til 1. júní næstkomandi. 

Verðlaunaflokkarnir eru fimm.


Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Senda tilnefningu


Framúrskarandi kennari
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Senda tilnefningu


Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi. Senda tilnefningu


Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Senda tilnefningu


Hvatningarverðlaun
Til einstaklings, hóps eða samtaka sem hafa stuðlað að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Senda tilnefningu


Viðurkenningarráð velur svo þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki. Tilnefningar eru kynntar á alþjóðadegi kennara 5. október og verðlaunin veitt í nóvember.

Íslensku menntaverðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Íslensku menntaverðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.