Vekjum athygli á því sem vel er gert

Fréttir|15. nóvember 2018

Ímyndin af gamla geðilla kennaranum með flösuna er lífseig og því miður er hún enn oft dregin upp í fjölmiðlum. Við erum sjaldnast í vinnunni og ef við erum þar gerum við mest lítið nema búa okkur undir líf á himinháum eftirlaunum ef við nýtum ekki tímann til að koma okkur fyrir í veikindaorlofi. Síðustu mánuði hef ég verið svo heppin að kynnast íslensku skólastarfi frá ýmsum hliðum. Þau kynni hafa verið vægast sagt gefandi og enn hef ég ekki hitt þennan gamla geðilla heldur hef ég kynnst frábæru fagfólki í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum sem leggur sig allt fram um að búa nemendur sína undir líf og starf. En lífið er auðvitað ekki einungis eftir að skólagöngunni lýkur heldur blómstar lífið einnig í skólunum.

Í sumarbyrjun fékk ég tækifæri til að eyða degi í leikskóla í höfuðborginni. Áður en ég kom í heimsókn var mér sagt að skólastarfið væri orðið fremur laust í reipunum, þar sem börn væru farin að fara í sumarleyfi og einhver þegar útskrifuð og hætt í leikskólanum, og útivera væri því í veigamiklu hlutverki. Þennan dag var einmitt hjóladagur og börnin höfðu fengið að koma með hjól í skólann eða gátu fengið lánuð. Skólastarfið sem ég kynntist þennan dag var stórkostlegt. Í upphafi dags, meðan börnin tíndust í skólann, léku þau sér með kubba eða plötur sem höfðu hin ýmsu form, sumir voru þríhyrndir, aðrir ferhyrndir o.s. frv. og á örfáum mínútum sá ég fjögurra ára börn tileinka sér mörg hugtök og leita svara við áhugaverðum spurningum. Næst á dagskránni var hjólaferð þar sem hver aldurshópur fór fyrirfram ákveðna leið sem var sniðin að þörfum hvers og eins. Hópurinn sem ég fylgdi hjólaði skemmtilega hjólastíga á nærliggjandi leikvöll. Á leiðinni var tækifærið notað og þeim sagt frá því sem fyrir bar, fánu og flóru. Strax á leiðinni var ljóst að eitt leiktækið, aparólan, væri langvinsælast og því reyndi það á lítil börn að passa að allir fengju bunu í henni, það þurfti að bíða, gæta þess að allir fengju sína bunu og þar fram eftir götunum.

Þessi dagur var ævintýri líkastur. Við tók nesti, heimferð, hádegismatur, garðrækt, bóklestur, önnur hjólaferð, frjáls leikur og svo mætti lengi telja. Allan daginn voru kennararnir vaknir og sofnir yfir börnunum og hver mínúta var nýtt til náms en samt alltaf á forsendum barnanna.

Skólastarfið sem ég kynntist þennan dag var algerlega til fyrirmyndar og sömu sögu er að segja af öðru skólastarfi sem ég hef kynnst síðan í vor. Kennarar í tónlistarskólum búa við þann veruleika að þeirra vinnudagur hefst seinni partinn og þeir kenna gjarnan í mörgum skólum en samt er þess gætt að hver nemandi blómstri þar á sínum forsendum. Grunnskólarnir státa af fjölbreyttu starfi og margt frábært er í gangi.

Grósku í skólastarfi má sjá víða. Á samfélagsmiðlasíðum má sjá viðburði tengda kennslu á nærri hverjum degi og alls kyns hópar og síður sem fjalla um nýsköpun í kennslu, kennsluaðferðir, lærdómssamfélög og menntun. Í hópnum glaðir og kátir kennarar á facebook má fylgjast með mikilli nýsköpun, hugmyndaauðgi og fagmennsku. Kennarar vekja athygli á málþingum, miðla kennsluefni og vekja athygli á því sem vel gefst. Alls kyns faghópar og faggreinafélög eru skapandi og kennarar keppast við að bæta hæfni sína. Ekki er svo langt síðan að eitt elsta og öflugasta faggreinafélag kennara, Samtök móðurmálskennara, hélt upp á fjörutíu ára afmæli sitt með málþingi. Málþingið var haldið á laugardegi en það kom ekki í veg fyrir að tugir móðurmálskennara af öllum skólastigum væru tilbúnir að eyða frídeginum sínum til að fjalla um íslenskukennslu og hitta samverkafólk úr öðrum skólum.

Og þetta er ekkert einsdæmi. Sem dæmi má nefna tvö verkefni. Í Samspili 2018, starfsþróunarverkefni á netinu sem er í þann veginn að fara í gang, blandast saman fræðsla og samnýting þekkingar. Í verkefni sem hlotið hefur heitið Menntabúðir koma kennarar saman og miðla eigin þekkingu og reynslu og læra hver af öðrum.

Síðustu mánuði hefur mikið verið rætt um skort á kennurum og dökk mynd dregin upp af framtíðinni. Þegar umræðunni er sífellt beint að álagi, slæmum launum og lélegri vinnuaðstöðu er hætta á að skólastarf sé talað niður og í því felst viss hætta. Miklu skiptir að vekja athygli á fagmennsku stéttarinnar. Skólafólk vítt og breitt af landinu sameinar sífellt krafta sína í þágu menntunar barna og unglinga. Íslenskir kennarar eru vel menntaðir og mörg afbragðsgóð verkefni eru í gangi. Vekjum því athygli á því sem vel er gert og tölum fyrir menntun barna og unglinga.

 

Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands. 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2018