Veistu um góða hljóðvist í leikskóla?

Fréttir|2. apríl 2024

Félagsfólk er hvatt til að tilnefna leikskóla þar sem er að finna framúrskarandi hljóðvist.

Íslenska hljóðvistarfélagið ætlar að veita árleg verðlaun til leikskóla sem hefur framúrskarndi hljóðhönnun bygginga og rýma. 

Félagið óskar eftir tilnefningum um leikskóla þar sem hljóðvist er vel heppnuð. 

Vert er að hafa í huga eftirtalin skilyrði félagsins: 

  • Leikskólinn sem tilnefndur er, er fullkláraður og í starfsemi
  • Hljóðvist er mikilvægur þáttur í upplifun og starfsemi
  • Vel útfærðar hljóðísogslausnir hafa áhrif á útlit rýma

Þess er óskað að tilnefningar berist fyrir næstu mánaðamót, apríl/maí. 

Félagsfólk sem þekkir til góðrar hljóðvistar í leikskóla er beðið um að senda inn tilefningu með stuttum rökstuðningi. 

Stefnt er að því að verðlaunin verði veitt á hausti komanda. 

Senda inn tilnefningu