Veikindi í orlofi

Fréttir|25. júní 2024
Pistill

Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími, sem veikindum nemur, almennt ekki til orlofs. Sérreglur gilda um kennara í grunn-, framhalds- og tónlistarskólum. Anna Rós Sigmundsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs KÍ skrifar.

Stjórnendur og leikskólakennarar: Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími, sem veikindum nemur, ekki til orlofs.

Grunnskólakennarar: Fyrir 1. júní ár hvert skal liggja fyrir skriflega hvaða 30 daga kennari í grunnskóla er skráður í orlof á tímabilinu 15. júní – 15. ágúst. Liggi það fyrir og veikist kennari í grunnskóla einhvern þann dag sem hann var skráður í orlof skv. framangreindu telst sá tími sem veikindum nemur ekki til orlofs. Því er afar mikilvægt að kennarar í grunnskólum fái skriflega staðfestingu t.d. í tölvupósti á skráningunni í maí ár hvert.

Framhaldsskólakennarar: Verði starfsmaður veikur í sumarhléi, í mánuð eða lengur, skal það sem fram yfir er skoðast sem veikindi í orlofi allt að fullum orlofstíma, 30 dögum.

Tónlistarskólakennarar: Nái starfsmaður ekki að nýta orlofsrétt sinn, 30 daga, á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst telst það sem á vantar til veikinda í orlofi.

Sé fyrirséð að starfsmaður geti ekki notið orlofs vegna veikinda eða veikist starfsmaður í orlofi er mikilvægt að hann tilkynni vinnuveitanda um veikindin svo fljótt sem auðið er. Tilkynnið um veikindi samdægurs ef hægt er. Sé tilkynnt um veikindi í orlofi munnlega er gott að fylgja tilkynningunni eftir með tölvupósti. Til að tryggja sönnun á tilkynningu er gott að senda tilkynninguna til næsta yfirmanns með tölvupósti og óska eftir staðfestingu á móttöku tilkynningarinnar. Senda skal tilkynningu jafnvel þótt næsti yfirmaður sé í orlofi. Í slíku tilviki getur verið gott að senda tölvupóstinn bæði til næsta yfirmanns og launadeildar. Einnig er mikilvægt að leita sem fyrst til læknis. Sé það mat læknis að starfsmaður hafi ekki getað notið orlofs er best að fá læknisvottorð þess efnis að starfsmaður hafi ekki getað notið orlofs. Gott er að senda afrit af vottorðinu til vinnuveitanda svo fljótt sem auðið er ásamt kvittun fyrir kostnaði við öflunar vottorðsins. Vinnuveitandi á að endurgreiða kostnað við öflun slíks læknisvottorðs.

Oft getur verið erfitt að fá viðtal við lækni með skömmum fyrirvara. Því er mikilvægt að tilkynna strax til vinnuveitanda um veikindi en bíða ekki með slíka tilkynningu þar til eftir læknisviðtal.

Áunnið orlof og fjöldi orlofsdaga sem teknir eru eiga að koma fram á launaseðli. Mikilvægt er að fylgjast með á launaseðli að ekki hafi verið skráð orlof þá daga sem starfsmaður gat ekki notið orlofs vegna veikinda.

Samantekt:

  1. Kennarar í grunnskólum ættu að óska eftir skriflegri staðfestingu frá skólastjóra í maí á því nákvæmlega hvaða daga þeir eru skráðir í orlof á tímabilinu 15. júní – 15. ágúst.
  2. Ef upp koma veikindi í orlofi:
    1. Tilkynna strax í upphafi veikinda um veikindin til vinnuveitanda. Senda tilkynningu samdægurs ef hægt er. Senda tilkynninguna í tölvupósti til að tryggja sönnun jafnvel þótt tilkynnt hafi verið munnlega.
    2. Leita til læknis og fá vottorð þess efnis að starfsmaður hafi ekki getað notið orlofs vegna veikinda.
    3. Senda læknisvottorð og kvittun fyrir kostnaði vegna öflunar þess til vinnuveitanda. Vinnuveitandi á að endurgreiða kostnað vegna læknisvottorðs.
    4. Fylgjast með á launaseðli að orlofsdagar hafi ekki verið teknir þá daga sem starfsmaður gat ekki notið orlofs vegna veikinda.