Vegna stríðsins í Úkraínu

Fréttir|27. febrúar 2022
Pistill

Skólinn á að vera öruggur staður þar sem börn finna skjól í heimi, sem svo sannarlega er stundum bæði ógnvekjandi og hættulegur.

Á morgun munu mæta í skólann áhyggjufull börn vegna stríðsins í Úkraínu. Þessir tímar eru okkur öllum erfiðir en sumum eru þeir sérstaklega erfiðir.
 
Nú eru krefjandi tímar fyrir börn og fullorðna sem þekkja það af eigin raun að vera á flótta undan stríðsátökum og óþarft er að fjölyrða um áhrifin á börn sem rekja rætur sínar til þess heimshluta sem nú logar af átökum.
 
Á heimasíðum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna má finna upplýsingar um það með hvaða hætti hægt er að ræða við börn um stríðsátök. Hér má lesa íslenskt efni sem tekið var saman vegna átakanna í Sýrlandi og hér er efni á ensku vegna stríðsins í Úkraínu.
 
Skólinn á að vera öruggur staður þar sem börn finna skjól í heimi, sem svo sannarlega er stundum bæði ógnvekjandi og hættulegur. Á tímum sem þessum skiptir slíkt skjól miklu máli. Það búa ekki öll börn svo vel að eiga athvarf. Stöndum vörð um það hér á landi.
 
Börn eru viðkvæmustu fórnarlömb átaka fullorðinna, átaka sem þau hafa enga stjórn á og bera enga ábyrgð á. Hryggilegt er að nú berast fréttir, víðsvegar að úr heiminum, að börn af rússneskum uppruna sæti aðkasti af hálfu jafnaldra sinna vegna uppruna síns. Verndum þau börn ekki síður en önnur börn sem eiga um sárt að binda vegna hins hörmulega stríðs.
 
Munum að börnin eiga fjölskyldur og á meðal vina, samstarfsfólks og samferðarmanna kann að vera fólk sem þarf á stuðningi okkar og samhjálp að halda.
 
Gerum það sem við getum til að vera til staðar hvert fyrir annað.

 
Þessi skilaboð voru send út til skólasamfélagsins sunnudaginn 27. febrúar 2022.