Vegna jöfnunar launa

Einróma mat stjórnar KÍ er að verkefni um jöfnun launa færist nú á borð kjarasamningsviðræðna, enda hafi starfshópi ekki tekist að leysa verkefnið innan tímaramma áfangasamkomulagsins, skrifar Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, skrifar:
Ágæta félagsfólk
Í september 2016 var gengið frá samkomulagi stéttarfélaga opinberra starfsmanna og opinberra launagreiðenda um breytingar á skipan lífeyrismála. Kveðið er á um jöfnun launa milli almenna og opinbera markaðarins í sjöundu grein samkomulagsins. Unnið hefur verið að því verkefni í raun allt frá undirritun þess.
Þó má segja að vinnan hafi ekki farið í gang af neinum krafti fyrr en haustið 2022. Hluti þeirrar vinnu leiddi af sér fyrsta skref í áfangasamkomulagi aðilanna sem undirritað var 23. mars 2023 og í kjölfarið var það framkvæmt á meðal starfsheita innan FG, FF og FL.
Hluti áfangasamkomulagsins fólst í því að fela starfshópi að leggja fram tillögur um hvaða aðferðafræði ætti að styðjast við við greiningu launamunar og hvaða hlutlægu viðmið skyldi hafa til hliðsjónar til framtíðar, eða þar til áfanganum um jöfn laun yrði náð. Hópurinn skyldi vera búinn að skila af sér þeim tillögum ekki síðar en 15. janúar.
Starfshópnum tókst ekki að leysa það verkefni innan þeirra tímamarka. Stjórn KÍ sendi því á þriðjudag erindi til aðila samkomulagsins frá 2016. Þar er vísað í ákvæði fyrrnefndrar sjöundu greinar sem segir að ef upp komi óleysanlegur ágreiningur skuli hann útkljáður í kjaraviðræðum.
Einróma mat stjórnar KÍ er að sú sé staðan nú, enda kvaðir áfangasamkomulagsins skýrar um að vinnunni skyldi lokið fyrir 15. janúar 2024 ellegar myndi það færast yfir á borð kjarasamningsviðræðna.
Þegar þessi orð eru rituð hafa viðbrögð við erindi stjórnar KÍ ekki borist en það er okkar mat að verkefnið um jöfnun launa sé lykilatriði í komandi kjarasamningum allra okkar aðildarfélaga og ekki verði lengur hægt að slá því á frest. Staða okkar sem háskólamenntaðra sérfræðinga er óumdeild og löngu tímabært að launakjör okkar séu í samræmi við sambærilegar starfsstéttir á almennum markaði.

Verkefnið um jöfnun launa er lykilatriði í komandi kjarasamningum allra okkar aðildarfélaga og ekki lengur hægt að slá því á frest
Könnun á meðal félagsfólks
Kennarasamband Íslands hefur ýmsum hlutverkum að gegna utan kjaramálanna. Koma þar bæði til verkefni sem tengjast hagsmunagæslu félagsfólks og verkefni sem snúa að skólaþróun og aðstæðum starfsins.
Að undanförnu má segja að stöðugt meiri eftirspurn sé eftir röddum félagsfólks KÍ. Ný verkefni hafa ratað á borð sambandsins og umfang verkefna þar sem óskað er aðstoðar eða umfjöllunar stjórnar og/eða starfsfólks KÍ hefur aukist.
Mörg þessara verkefna hafa kallað á aðkomu félagsfólks að málþingum, ráðstefnum og í vinnuhópum sem oft og tíðum eru skipulögð af öðrum aðilum og þá verið að leita viðbragða okkar við þeim. Mikil umræða hefur farið fram innan stjórnar KÍ um hvernig styrkja megi stöðu okkar í öllum þeim verkefnum sem snúa að skólastarfi á Íslandi, óháð skólastigum og skólagerðum.
Með það að leiðarljósi mun félagsfólki berast könnun á næstu vikum sem við ætlum að taki á áherslum okkar í þeim ólíku verkefnum sem eru uppi, bæði innan KÍ sem heildarsamtaka, og á vettvangi aðildarfélaganna. Við viljum kanna hug félagsfólks til þessara verkefna en líka horfa til þess hvaða hlutverki þið teljið KÍ eiga að gegna við að vinna að hagsmunum ykkar.
Von okkar er að svörun verði góð enda ætlum við, næstu mánuði og ár, að byggja mikið af okkar vinnu á niðurstöðunum. Þarna er vinna sem KÍ mun leiða og eftir atvikum kalla eftir samstarfi við þá aðila sem við teljum að geti leitt þau verkefni til lykta með okkur.
Fyrsta skrefið verður ráðstefna sem við ætlum að halda þann 9. apríl og verður kynnt betur þegar nær dregur. Efnistök þeirrar ráðstefnu munu byggja á niðurstöðum könnunarinnar með að markmiði að við náum enn betri árangri í íslensku skólastarfi.
Árið 2024 stefnir því í að verða viðburðaríkt fyrir félagsfólk KÍ, á mörgum sviðum okkar tilveru.
Magnús Þór Jónsson,
formaður KÍ