Vegið að raungreinakennslu í framhaldsskólum

Fréttir|24. ágúst 2016

Raungreinar, raungreinakennsla og raungreinakennarar njóta ekki sannmælis miðað við annað bóknám í framhaldsskólum landsins. Þetta kemur fram í ályktun Samlífs, samtaka líffræðikennara, þar sem ráðherra menntamála er enn og aftur hvattur til að tala máli raungreina í íslensku skólakerfi.
„Stjórn Samlífs undrast að ráðuneyti sem kallar á fjölgun nemenda í raungreina- og tækninámi sporni ekki við þessari skerðingu og kallar eftir að raungreinar; líffræði, efnafræði, eðlisfræði og jarðfræði, verði ríkur hluti af íslensku stúdentsprófi,“ segir meðal annars í ályktun Samlífs.

Að sögn stjórnar Samlífs hefur verið vegið mjög að kennslu raungreina í íslenskum framhaldsskólum á undanförnum árum, fækkun eininga ti stúdentsprófs.

Samlíf er ekki að álykta um málið í fyrsta skipti nú heldur hefur félagið í þrígang sent menntamálaráðherra ályktanir vegna niðurskurðar í raungreinakennslu, eða árin 2013, 2014 og 2015.

Ályktun Samlífs í heild sinni.