Veðurfræðinámskeið
Fréttir|13. október 2021

Fullbókað var á námskeiðið og almenn ánægja með það.
Dagana 7. og 8. júní s.l. sumar stóð Félag raungreinakennara í samstarfi við Endurmenntun fyrir námskeiðinu Veðurfarsfræði ætlað raungreinakennurum í framhaldsskólum. Kennslan var í höndum Haraldar Ólafssonar, veðurfræðings og prófessors við HÍ. Það var mjög vel sótt, rétt undir 30 þátttakendur þ.a. að það taldist vera fullbókað.
Almenn ánægja var með námskeiðið, efnisval sem og kennslu og útskýringar Haraldar, en aðaláhersluatriðin voru:
- Stærðargráður, ferli og kraftar í lofthjúpi jarðar
- Veðrakerfi á stórum kvarða, lægðir og hæðir
- Veðrakerfi á millikvarða, hafgola, brekkuvindur, fallvindur, landgola og rastir við fjöll
- Geislunarbúskapurinn
- Veðurfar og veðurfarsbreytingar
- Efasemdir, afneitun og hamfarir í veðurfarsmálum
- Veðurspár og veðurgögn
Félag raungreinakennara þakkar þátttakendum fyrir og vonast til að undirtektir verði álíka góðar fyrir námskeið komandi sumars.
Mynd frá námskeiðinu:
