Valdefling foreldra barna í grunn- og leikskólum

Háskóli Íslands og mennta- og barnamálaráðuneytið hafa undirritað samsstarfssamning um þróun námskeiða um uppeldi barna fyrir foreldra, sem haldin verða í leik- og grunnskólum. Aðalmarkmið verkefnisins er að valdefla foreldra í uppeldishlutverki sínu og efla grunnþjónustu við börn og foreldra.
„Rannsóknir sýna að markviss stuðningur við foreldra í uppeldi barna sinna er ein arðbærasta fjárfesting sem nokkurt samfélag getur gert, hvort sem horft er til velferðar einstaklinga eða hagrænna mælikvarða samfélagsins alls. Ég hlakka mjög til þess að koma af stað þessari fjárfestingu og að fylgjast með framgangi hennar næstu tvö árin og vonandi enn lengur en það,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Þetta kemur fram í frétt sem birt er á vef Háskóla Íslands.
Þar segir jafnframt þetta:
„Lögð verður rík áhersla á að styrkja samstarf milli skólasamfélagsins og foreldra um uppeldi barna með markvissum hætti. Námskeiðin verða þannig þróuð í samstarfi við kennara og foreldra við valda leik- og grunnskóla og í nánu samstarfi við Menntamálastofnun. Við þróun námskeiðanna verður sérstaklega horft til gagnreyndra aðferða dr. Carolyn Webbster Stratton, The Incredible Years. Markmiðið er að í framhaldinu verði þau aðgengileg öllum leik- og grunnskólum á landinu. Á þróunartímanum verða áhrif námskeiðsins metin m.a. út frá reynslu foreldra, barna, skólasamfélagsins og mögulegum hagrænum ávinningi verkefnisins. Faglegur stjórnandi þessa þróunarverkefnis verður Anna Magnea Hreinsdóttir, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Námskeiðin eru mikilvægur liður í að styðja við þá hugmyndafræði sem ný löggjöf um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna byggist á auk nýrra laga um skólaþjónustu sem stefnt er að því að leggja fram á Alþingi á næsta löggjafarþingi.“