Valdeflandi sköpun, lausnaleit og tjáning

Fréttir|25. nóvember 2026
Skólavarðan
Elías Arnar Norðfjörð Ólafsson, Áslaug Sólbráð Ásmundsdóttir og Natalía Rós Halldórsdóttir

Framtíðarstofan er hönnunar- og hátækniverkstæði Tækniskólans í Hafnarfirði sem hýsir meðal annars Fab Lab-smiðju þar sem nemendur skólans og aðrir áhugasamir geta látið hugmyndir sínar verða að veruleika.  

Áslaug Sólbráð Ásmundsdóttir, kennari á starfsbraut Tækniskólans, hefur nýtt framtíðarstofuna með sínum nemendum. Hún segir að áhuga sinn á Fab Lab-kennslurýmum megi rekja til námskeiðsins Fræðslustarf, nýsköpun og atvinnulíf við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

„Það getur verið áskorun að finna viðfangsefni sem höfða til nemenda, sér í lagi þeirra sem hafa misst áhuga á námi en þarna sá ég mikla möguleika. Sköpunarsmiðjur fela í sér stafræna menntun, sem er mjög tengd raunverulegum verkefnum atvinnulífsins, og geta því aukið möguleika nemenda á því að komast inn á vinnumarkað. Atvinnutækifæri eru einn þáttur, en sjálfstæði, tjáning og möguleikinn á að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins skipta einnig máli. Að þekkja inn á sköpunarsmiðjur getur einnig verið tækifæri til þátttöku í félagsstarfi þessara nemenda og dregið úr einangrun því slíkar smiðjur eru opnar almenningi bæði hér á landi og erlendis,“ segir Áslaug.

Hugmyndir nemenda verða að sýnilegum afurðum

Í Fab Lab-kennslurýminu hanna, móta og framleiða nemendur hluti með stafrænni tækni. „Ég hef meðal annars viljað dýpka vinnu nemenda í Inkscape, teikni- og hönnunarforriti. Í því verða til svokallaðar „vektormyndir“ fyrir leiser- og vínilskurð. Í slíkri vinnu getur hugmynd nemandans orðið að sýnilegri afurð þar sem unnið er með sköpun, mælingar, lausnaleit og tjáningu innan sama verkefnis. Námið getur þannig fengið skýran tilgang og það er valdeflandi fyrir nemendur að vinna að einhverju sem þeir hafa áhrif á, geta útskýrt, prófað og endurbætt.“

Áslaug hefur sjálf lært heilan helling við vinnuna. „Ég er sjálf að læra á forrit, búnað og aðferðir. Ég þarf að prófa mig áfram, leita skýringa og endurskoða lausnir. Sú staða gefur mér tilefni til að hugsa um hvernig nemendum líður þegar verkefni reynast flókin eða niðurstaðan verður önnur en þeir ætluðu. Hún minnir mig á mikilvægi skýrra leiðbeininga, tíma til æfinga og námsumhverfis þar sem mistök geta orðið upphaf frekara náms.“


Sameiginleg tækifæri þvert á brautir

Áslaug telur mikilvægt að skoða hvort Fab Lab geti skapað fleiri sameiginleg tækifæri innan skólans, þvert á námsbrautir, og þannig dregið úr aðgreiningu. „Sameiginleg verkefni nemenda af ólíkum brautum geta skapað tilefni til samstarfs þar sem fjölbreytt hæfni nýtur viðurkenningar. En til þess að það geti orðið þarf að tryggja að allir fái merkingarbær hlutverk, viðeigandi stuðning og áhrif á vinnuna. Fyrir nemanda sem hefur upplifað útilokun eða endurtekin vonbrigði getur slíkt námsumhverfi skipt miklu máli. Nemandi getur þurft aðra framsetningu, meiri tíma, hjálpartæki eða aðra leið til að sýna þekkingu án þess að námsmarkmiðin þurfi alltaf að verða minni. Spurningin er því ekki aðeins hvort verkefnið sé viðráðanlegt, heldur einnig hvort það gefi nemandanum tækifæri til að vaxa.“

„Sköpunarsmiðjur fela í sér stafræna menntun, sem er mjög tengd raunverulegum verkefnum atvinnulífsins, og geta því aukið möguleika nemenda á því að komast inn á vinnumarkað“

Orðræða um ólíkar námsleiðir skiptir máli

Áslaug segir orðræðuna um ólíkar námsleiðir skipta máli. „Þegar sagt er að nemandi geti „unnið sig upp“ á almenna námsbraut felst í því að námsbrautum sé raðað í stigveldi. Þannig getur almennt nám orðið mælikvarði á árangur, jafnvel þegar markmið nemandans liggja annars staðar. Brautarskipti geta verið mikilvæg og eftirsóknarverð, en þau ættu ekki að vera eina vísbendingin um merkingarbært nám. Sjálfstæði, samskipti, fagleg hæfni, sjálfsþekking og aukið vald yfir eigin lífi geta einnig verið mikilvæg námsmarkmið.“

Í þessu samhengi vísar Áslaug til greinarinnar Framkvæmd stefnu um menntun fyrir alla á Íslandi: Viðhorf skólafólks og tillögur um aðgerðir, sem Edda Óskarsdóttir, Hermína Gunnþórsdóttir, Birna M. Svanbjörnsdóttir og Rúnar Sigþórsson birtu í Netlu – veftímariti um uppeldi og menntun árið 2021. Þar er fjallað um þörfina á að endurskoða rótgróin viðhorf til náms og námsmöguleika nemenda.

„Nemendur þurfa að fá að kanna fjölbreytt viðfangsefni og hafa áhrif á eigin námsleiðir. Aðgangur að bóklegu, verklegu og skapandi námi ætti að ráðast af áhuga og markmiðum nemenda ásamt viðeigandi stuðningi. Merkingarbært nám er ekki það sama fyrir alla nemendur. Fyrir einn nemanda getur það falist í að undirbúa sig fyrir starf eða frekara nám. Fyrir annan getur það tengst því að tjá hugmyndir sínar, skilja samfélagið eða verða sjálfstæðari í daglegu lífi. Merking getur líka orðið til í náminu sjálfu, þegar nemandi uppgötvar nýjan áhuga eða upplifir að framlag hans skipti máli. Þess vegna þarf að ræða markmið við nemendur og skapa aðgengilegar leiðir fyrir þá til að tjá óskir sínar. Einstaklingsmiðuð áætlun verður ekki sjálfkrafa áætlun nemandans ef hann hefur lítil áhrif á hana.“


Samþætting námsgreina og nýsköpunar

Áslaug telur nýsköpunar- og frumkvöðlamennt áhugaverða leið til að stuðla að þróun menntunar. Í því samhengi vísar hún til Handbókar um nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í grunnskólum, sem Karl Friðriksson, Svanborg R. Jónsdóttir og Eyjólfur B. Eyjólfsson sömdu og kom út á vegum Nýsköpunarkeppni grunnskólanna árið 2021. Þar er lögð áhersla á möguleika nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar til að stuðla að þróun menntunar.

„Í sköpunarsmiðjum, svo sem Fab Lab, má hugsa sér verkefni sem tengja saman hönnun, stærðfræði, tungumál, stafræna tækni og samstarf. Nemendur geta unnið að sýnilegum afurðum, prófað hugmyndir og breytt þeim út frá reynslu. Til dæmis gæti verkefni falist í að hanna hlut sem auðveldar einhverjum daglegt líf. Nemendur gætu rætt við þann sem notar hlutinn, greint þörfina, mælt, teiknað, búið til frumgerð og prófað hana. Innan sameiginlegs verkefnis gætu verið ólík námsmarkmið og mismunandi leiðir til þátttöku. Einn nemandi gæti lagt áherslu á mælingar, annar á hönnun og sá þriðji á kynningu. Mikilvægt væri þó að hlutverkin festust ekki þannig að sumir fengju alltaf skapandi og krefjandi verkefni en aðrir aðeins einföld hjálparverk.“

Áslaug segir að mikilvægt sé að líta á frumkvöðlamennt út frá fleiri markmiðum en stofnun fyrirtækja eða sölu afurða. „Nýsköpun getur falist í að bæta aðgengi, leysa hversdagslegan vanda, endurnýta efni eða styrkja samfélag. Nemandi getur lært mikið af tilraun sem tekst ekki, af samstarfi sem reynir á eða af því að endurskoða hugmynd eftir ábendingar annarra. Námsmat þarf því að taka mið af ferlinu og framlagi nemandans, ekki eingöngu lokaafurðinni. Jafnframt þarf að ræða við nemandann um hvað honum fannst mikilvægt og hvað hann vill prófa næst.“

Greinin birtist í Skólavörðunni haust 2026