Val á viðmiðunartímabili
Í rammasamningi aðila vinnumarkaðar frá 27. október 2015 er meðal annars gert ráð fyrir sameiginlegum kostnaðarramma aðila. Í því felst að kostnaðaráhrif kjarasamninga að meðtöldum kostnaði vegna jöfnunar lífeyrisréttinda sé sá sami hjá öllum aðilum á ákveðnu tímabili.
Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, skrifar
KÍ taldi ekki verjandi að undirrita rammasamninginn af þremur meginástæðum eins og tilgreint er í athugasemdum sem Kennarasambandið hefur gert við málatilbúnaðinn. Tvær af þessum ástæðum snúa að framangreindum kostnaðarramma. Önnur þeirra tengist því að KÍ getur ekki fallist á að hugsanleg útgjöld hins opinbera sem ætluð væru til þess að koma í veg fyrir skerðingu á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna teldust með kostnaðaráhrifum kjarasamninga. Hin tengist vali á viðmiðunartímabili.
Útfærslan í rammasamningnum er þannig að umrædd kostnaðaráhrif kjarasamninga (að meðtöldum kostnaði vegna jöfnunar lífeyrisréttinda) eiga að vera 32% á tímabilinu frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Launbreytingar stærstu hópa launþega á tímabilinu frá nóvember 2013 til september eru að mestu þekktar og eiga að óbreyttu samkomulagi að dragast frá 32% við gerð kjarasamninga frá þeim tíma. Þessar breytingar á reglulegum launum má sjá í töflunni hér fyrir neðan.
Eins og sjá má hækkaði launavísitalan um 5,7% á tímabilinu en á sama tíma hækkuðu laun KÍ félaga sem semja við ríkið um 14,7% og um 11,1% hjá KÍ félögum sem semja við sveitarfélögin. Ef litið er á allar þessar hækkanir sem kostnaðarauka yrði svigrúm til launahækkana félagsmanna KÍ í kjarasamningum til ársloka 2018 sem þessu nemur minna. Ennfremur sést, ef neðsta lína töflunnar er skoðuð, að þessi aðferðafræði hefði það í för með sér að laun félagsmanna KÍ hækkuðu minna en laun félagsmanna annarra hópa á tímabilinu frá september 2014 til ársloka 2018. Val á upphafspunkti hefur mikil áhrif í þessu samhengi. Augljóslega væri t.d. hagfelldara fyrir félagsmenn KÍ að miða upphaf viðmiðunartímabilsins við september 2014 frekar en nóvember 2013.
Einhverjir kunna að velta því fyrir sér hvernig umrædd aðferðafræði kæmi út fyrir félagsmenn KÍ ef önnur upphafsár væru valin en 2013 eða 2014. Ein leið til þess að meta það er að skoða töfluna hér fyrir neðan sem tekin er úr ritinu Í aðdraganda kjarasamninga frá febrúar 2015.
Í töflunni má sjá launþróun hópa launamanna milli nóvembermánaða ár hvert frá árinu 2006 fram að september 2014. Þau ár þar sem vísitala hóps er tiltölulega lág eru að öðru jöfnu slæm upphafsár fyrir viðkomandi hóp. Í töflunni hér fyrir neðan eru sýnd frávik vísitölu KÍ-hópanna frá launavísitölunni ár hvert.
Af frávikunum má ráða að af þeim árum sem upplýsingarnar ná til hefði árið 2007 líklega komið sér verst fyrir flesta félagsmenn KÍ sem upphafspunktur, a.m.k. ef árið 2013 er undanskilið.
Í næstu töflu eru sýnd samsamsvarandi frávik frá launavísitölunni fyrir alla níu hópana sem upplýsingarnar ná til. ASÍ hópurinn á almennum markaði er langfjölmennastur og vegur þyngst í launavísitölunni. Frávik þess hóps frá vísitölunni er því að jafnaði ekki mikið. Gildin gefa þó vísbendingu um hvers vegna sá hópur lagði áherslu á að 2013 yrði upphafsár viðmiðunartímabilsins frekar en 2014.
Oddur S. Jakobsson,
hagfræðingur KÍ