Vaktir Orlofssjóðs um páskana

Fréttir|15. apríl 2025

Hægt verður að koma skilaboðum til Orlofssjóðs í gegnum tölvupóst um páskahelgina.

Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um páska, eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á.

Skrifstofa KÍ verður lokuð yfir páskana. Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs eða koma skilaboðum til sjóðsins getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is.

Starfsfólk Orlofssjóðs mun lesa tölvupóst sem hér segir:

Fimmtudag

17. apríl

11:00-12:00

Laugardag

19. apríl

11:00-12:00

Mánudag

21. apríl

11:00-12:00

 

Gleðilega páska og góða ferð!